Bandaríska leikkonan Gabrielle Union átti frábært sumar og birti nokkrar myndir frá sólríku mánuðunum á Instagram.
Fyrsta myndin hefur vakið mikla athygli en á henni er leikkonan nakin í útisturtu, eina sem hylur hana er lítið þvottastykki.
Prófaðu að endurhlaða síðuna ef þú sérð ekki færsluna hér að neðan.
View this post on Instagram
Margir muna eftir Union, 51 árs, úr kvikmyndinni Bring It On árið 2000.
Flestir aðdáendur hennar tóku nektarmyndinni fagnandi og sögðu hana stórglæsilega.
„Hvernig ertu ekki að eldast?!“ spurði einn og snerust margar athugasemdir um hversu ungleg hún er.
En sumir voru ekki alveg jafn hrifnir og gagnrýndu Union.
„Fyrsta myndin er alveg óþarfi,“ sagði einn.
„Ég elska þig en þetta veldur mér vonbrigðum. Þú ert fullorðin,“ sagði annar.