Fyrrum starfsmenn hertogaynjunnar Meghan Markle kalla hana djöful í mannsmynd sem hafi reglulega hagað sér eins og brjálæðingur gegn þeim. Þetta kemur fram í umfjöllun Daily Beast.
Meghan Markle var lýst sem umhyggjusömum yfirmanni í nýlegi umfjöllun Us Weekly á þriðjudaginn. Þar sögðu núverandi starfsmenn að hertogaynjan væri frábær og gjafmild við starfsmenn. Líklega var sú umfjöllun viðbragð við frétt Hollywood Reporter þar sem Markle var kölluð einræðisherra á háum hælum sem getur grætt fullvaxta karlmenn.
Nú hafa fyrrum starfsmenn hertogaynjunnar rætt við Daily Beast og segja að vissulega hafi Markle fengið slæma útreið í fjölmiðlum eftir að hún ákvað að yfirgefa hirðina í Bretlandi. Allar hennar verstu stundir hafi verið sprengdar upp úr öllu valdi hjá breskum miðlum og slitnar alfarið úr samhengi.
„Að því sögðu þá komu virkilega slæmir tímar, jafnvel stundir þar sem hún hegðaði sér eins og brjálæðingur. Ég var vitni að því þegar hún hellti sér yfir fólk í eigin persónu sem og í gegnum símann. Hún lét fólk upplifa sig einskis nýtt. En þetta gerðist á mjög streituvaldandi tímabilum svo ég hef þann fyrirvara. Hún segir sjálf að hún hafi glímt við sjálfsvígshugsanir á þessum tíma.“
Þessi fyrrum starfsmaður, sem óskaði nafnleyndar, minnti eins á að fyrrum upplýsingafulltrúi Markle, þegar hún bjó enn í Bretlandi, hafi formlega kvartað undan henni eftir að hún hrakti tvo aðstoðarmenn frá störfum með eineltistilburðum.
Annar starfsmaður starfaði fyrir Markle í aðdraganda brúðkaups hennar og Harry Bretaprins. Hann segir: „Mér fannst hún alltaf vera klassískur narsissisti, og það að hún sé að láta starfsfólk sitt ræða við fjölmiðla um hvað hún sé frábær núna staðfestir bara þann grun minn. Hún er æðisleg þegar allt gengur upp fyrir hana en djöfull í mannsmynd þegar á móti blæs“
Annar heimildarmaður segir sögu af blómaskreyti sem lenti í því að Markle öskraði á hana í heila klukkustund í gegnum síma. „Hún sór þess í kjölfarið eið að vinna aldrei með Meghan aftur, þó það gæti orðið frama hennar til góðs. Þeir sem starfa fyrir hana lenda gjarna í því að komið er fram við þá sem einnota starfsmenn sem megi koma fram við eins og skít.“