Svona hefst bréf karlmanns til kynlífs- og sambandsráðgjafans Sally Land sem sér um vinsæla dálkinn Dear Deidre hjá The Sun.
Maðurinn var fyrst eyðilagður þegar hann komst að því að kærastan hans hafði haldið framhjá honum. En nú er reiðin farin og kokkálablæti komið í staðinn.
Hann er 27 ára og kærasta hans er 28 ára. Þau kynntust í háskóla og hafa verið saman í fimm ár.
„Fyrir tveimur árum greip ég hana glóðvolga halda framhjá mér með öðrum karlmanni. Ég kom að þeim inni á baðherbergi í partýi. Hún var að veita honum munnmök. Ég var í áfalli, sár og reiður en furðulega graður líka. Ég stóð og horfði á þau í smá stund áður en ég lét þau vita að ég væri þarna.
Kærastan mín var miður sín og sagði að þetta hafi verið áfenginu að kenna. Ég fyrirgaf henni. En ég gat ekki hætt að hugsa um þetta, ég stundaði sjálfsfróun á meðan ég hugsaði um þetta.
Nokkrum mánuðum seinna sagði ég kærustunni minni frá þessu nýja blæti og sagði henni að ég myndi glaður leyfa henni að sofa hjá öðrum karlmönnum, með því skilyrði að ég gæti verið þar og horft á þau saman.
Þetta kom henni á óvart en hún viðurkenndi að henni þætti þetta góð hugmynd. Við byrjuðum að fara á skemmistaði og bari að leita að karlmönnum sem voru viljugir að taka þátt.
Hún var feimin þegar hún stundaði kynlíf með öðrum karlmanni í fyrsta skipti fyrir framan mig, en um leið og hún byrjaði fljótlega að njóta sín, sérstaklega þegar hún sá hversu mikið ég var að fíla þetta.
Við vorum svo vön að ræða um þetta eftir á og stunda síðan kynlíf.
Vandamálið er að ég er farinn að skammast mín vegna þessa. Ég hef áhyggjur að þetta sé ekki eðlilegt og er hræddur um að ég sé búinn að eyðileggja sambandið okkar. Ég er líka hræddur um að hún muni verða ástfangin af einum elskhuganum.“
„Kokkálablætið þitt er ekki eins óvenjulegt og þú heldur. Tilhugsunin um að einhver annar sofi hjá konunni þeirra kveikir í mörgum karlmönnum.
En það er áhætta fólgin í því að gera fantasíu að raunveruleika, eins og þú hefur komist að.
Þú þarft að tala við hana, segja henni hvað þú óttast og ræðið mörk. Það gæti verið að henni líður eins, eða hafi áhyggjur af því að ef hún hættir að taka þátt í þessu þá hættir þú með henni.
Kannski verðið þið sammála um að þetta sé fantasía sem þið ræðið um, frekar en leikið eftir.“