fbpx
Fimmtudagur 26.september 2024
Fókus

Áttburamamman er orðin amma

Fókus
Þriðjudaginn 24. september 2024 07:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Natalie Suleman, betur þekkt sem „áttburamamman“, er orðin amma en hún tilkynnti á Instagram-síðu sinni að hún væri nú búin að eignast sitt fyrsta barnabarn.

Natalie komst í heimsfréttirnar árið 2009 þegar hún varð fyrsta kona sögunnar til að eignast áttbura sem allir lifðu af. Fyrir átti Suleman sex börn.

Natalie, sem áður hét Nadya, er 49 ára gömul og eðli málsins samkvæmt hefur hún haft í mörg horn að líta á undanförnum árum.

Í færslu á Instagram-síðu sinni sagði hún að 23 ára sonur hennar hafi eignast litla stúlku með unnustu sinni fyrir skemmstu. Þakkaði hún syni sínum og tengdadóttur fyrir þessa „einstöku gjöf“ og um væri að ræða kærkomna viðbót við fjölskylduna.

Natalie var áberandi í sjónvarpi árin eftir að áttburarnir komu í heiminn en hún hefur að mestu haldið sig til hlés síðustu ár. Hún birti þó myndir af áttburunum fyrr á þessu ári þegar þeir fögnuðu 15 ára afmæli sínu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragnhildur segir algengar ástæður fyrir því að einstaklingar með ADHD fari í skápaskrölt á kvöldin

Ragnhildur segir algengar ástæður fyrir því að einstaklingar með ADHD fari í skápaskrölt á kvöldin
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ferðamartröð Frosta og fjölskyldu – „Ég hef aldrei lent í öðru eins“

Ferðamartröð Frosta og fjölskyldu – „Ég hef aldrei lent í öðru eins“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Nemendur á Laugum raða inn stigum í árlegri keppni – Tannburstar notaðir til að koma í veg fyrir svindl

Nemendur á Laugum raða inn stigum í árlegri keppni – Tannburstar notaðir til að koma í veg fyrir svindl
Fókus
Fyrir 3 dögum

Stærsti skandall J.Lo dreginn fram í dagsljósið – Handtekin með Diddy eftir skotárás

Stærsti skandall J.Lo dreginn fram í dagsljósið – Handtekin með Diddy eftir skotárás