Á lokaathöfn alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Nuuk tilkynnti Berda Larsen, formaður dómnefndarinnar, að íslenska kvikmyndin Ljósbrot eftir Rúnar Rúnarsson hafi verið valin besta kvikmyndin.
Í tölu sinni sagði hún að: „Með kraftmikillli miðlun tilfinninga leiddi myndin okkur áfram og gerði okkur berskjölduð. Það er einróma ákvörðun dómnefndarinnar að Ljósbrot er besta leikna kvikmyndin á hátíðinni.“
Eru þetta sjöttu alþjóðlegu kvikmyndaverðlaun Ljósbrots sem hefur verið að fara sigurför um heiminn eftir að hafa hlotið standandi lófaklapp sem opnunarmynd á Kvikmyndahátíðinni í Cannes. Ljósbrot hefur einnig verið valin í forval til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna og framundan eru fjölda kvikmyndahátíða. Þá hefur Ljósbrot einnig selst vel og mun fara í almennar sýningar um allan heim á næstunni.
Myndin gerist á fallegum vordegi þegar líf Unu snýst á hliðina á svipstundu og upphefst rússibanaferð tilfinninga. Þar sem mörkin milli hláturs og gráturs, fegurðar og sorgar, verða stundum óskýr. Með aðalhlutverk fara, Elín Hall, Katla Njálsdóttir, Mikael Kaaber, Baldur Einarsson, Gunnar Kristjánsson og Ágúst Wigum.
„Það er svo ótrúlega gaman hvernig myndin okkar heldur áfram að ferðast um heiminn og finna nýja áhorfendur. Ég er mjög stoltur af þeim ótrúlega hæfileikaríka hópi fólks sem gerði þessa mynd,“ segir Rúnar Rúnarsson leikstjóri.