Tvær nýjar bronsstyttur af Elísabetu II drottningu hafa vakið mikið umtal. Á annarri lítur hún út eins og Disney prinsessa en á hinni eins og rússnesk babúshka. Corgi hundarnir eru með á báðum styttum hins vegar.
Ný stytta var afhjúpuð af Elísabetu II og Filippusi í Antrim kastalagarðinum, norðan við borgina Belfast í Norður Írlandi í síðustu viku eins og greint er frá á sjónvarpsstöðinni Sky News. Tveir Corgi hundar eru einnig með þeim en hjónin áttu 30 slíka hunda á langri lífsleið.
„Styttan sýnir hennar hátign í virðulegri stellingu, sem sýnir hversu staðföst hún var í ævilangri opinberri þjónustu,“ segir í færslu sveitarstjórnar Antrim og Newtonabbey. Listamaðurinn sem gerði stytturnar heitir Anto Brennan.
Ekki reyndust hins vegar allir sammála því og létu margir í sér heyra í athugasemdum.
„Þetta er óvirðing við minningu hennar hátignar, þetta lítur ekkert út eins og hún,“ sagði einn netverji. Annar hvatti sveitarstjórnina til þess að taka þennan „ófögnuð“ niður.
„Þetta lítur meira út eins og Mrs. Doubtfire,“ sagði enn einn og vísaði í hina vinsælu gamanmynd þar sem Robin Williams klæddist í búningi barnfóstru.
Þrátt fyrir þessar og margar fleiri neikvæðar athugasemdir sagði forsvarsmaður sveitarstjórnarinnar að styttan hefði fengið mjög góðar viðtökur.
Í vor var önnur stytta af Elísabetu II afhjúpuð, í bænum Oakham í Miðlöndunum í Englandi. Er um að ræða mun stærri styttu, aðeins af drottningunni og Corgi hundunum hennar. Sú stytta er einnig á stórum stalli og langtum virðulegri en styttan í Belfast.
Má þó segja að sú stytta sé eiginlega of ævintýraleg. Að drottningin líti frekar út eins og prinsessa úr ævintýri en alvöru manneskja.