fbpx
Þriðjudagur 27.ágúst 2024
Fókus

Alix Earle biðst afsökunar á rasískum ummælum

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 27. ágúst 2024 09:00

Alix Earle. Mynd/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samfélagsmiðlastjarnan Alix Earle hefur beðist afsökunar á því að hafa skrifað rasísk og fordómafull ummæli á netinu þegar hún var þrettán ára gömul.

Umræddar færslur voru fyrst dregnar fram í dagsljósið fyrir tveimur árum en gleymdust fljótt. En undanfarnar vikur hafa þær farið í dreifingu um netheima á ný og hafa aðdáendur ýtt á Earle að bregðast við.

Earle, 23 ára, er ein vinsælasta samfélagsmiðlastjarnan í dag, með yfir 7,1 milljónir fylgjenda á TikTok og 3,7 milljónir fylgjenda á Instagram. Hún heldur einnig úti vinsæla hlaðvarpinu Hot mess.

Afsökunarbeiðnin

Alix Earle birti langa afsökunarbeiðni í story á Instagram í gær. Hún byrjaði á því að biðjast afsökunar að hafa notað n-orðið.

Yfirlýsinguna í heild sinni má lesa hér að neðan.

Alix Earle apology for racist tweets

Earle sagði að hún hafi verið þrettán ára þegar hún lét þessi ummæli falla og hafi ekki áttað sig almennilega á því hversu fordómafull og niðrandi orð hennar væru.

„En það er engin afsökun,“ sagði hún og baðst innilega afsökunar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Vikan á Instagram – „Ég er svo heit að þú tókst ekki einu sinni eftir því að það vantar í mig tönn“

Vikan á Instagram – „Ég er svo heit að þú tókst ekki einu sinni eftir því að það vantar í mig tönn“
Fókus
Í gær

Sunneva og Benedikt ástfangin í fimm ár – Birti mynd úr fyrsta ferðalaginu þeirra saman

Sunneva og Benedikt ástfangin í fimm ár – Birti mynd úr fyrsta ferðalaginu þeirra saman
Fókus
Fyrir 2 dögum

Maðurinn sem segist vita sannleikann um Amelia Earhart en enginn trúir honum

Maðurinn sem segist vita sannleikann um Amelia Earhart en enginn trúir honum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Illuga er misboðið vegna þróunar Menningarnætur

Illuga er misboðið vegna þróunar Menningarnætur