fbpx
Mánudagur 26.ágúst 2024
Fókus

Lily Allen hótað lífláti vegna ummæla í hlaðvarpsþætti

Fókus
Mánudaginn 26. ágúst 2024 13:30

Lily Allen. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska söngkonan Lily Allen á það til að koma sér í klandur vegna orða sem hún lætur út úr sér en nú segir hún að fólk hafi gengið of langt í gagnrýni sinni.

Allen heldur úti hlaðvarpsþætti og í þætti sínum í síðustu viku ræddi hún við velska sjónvarpsmanninn Steve Jones. Í þættinum var víða komið við og komu gæludýr meðal annars við sögu. Á einum tímapunkti sagði Allen að hún hefði einu sinni fengið sér hund en ákveðið að skila honum eftir að hann át vegabréf hennar og barna hennar.

Allen sagði að þetta hafi valdið fjölskyldunni miklum vandræðum og varð meðal annars til þess að börnin komust ekki til Bretlands til að hitta föður sinn sem þar er búsettur. Vegabréfsáritanir hefðu glatast og þar sem þetta gerðist á tímum Covid-faraldursins hafi þetta orðið heljarinnar vesen.

Allen sagði svo frá því á Instagram-síðu sinni um helgina að hún hefði fengið yfir sig holskeflu ógeðslegra skilaboða og meira að segja líflátshótanir vegna ummæla sinna. Virðast dýravinir hafa tekið sig saman og sent henni hótanir og miður falleg skilaboð.

Allen útskýrði svo í færslunni að hún hefði ekki bara skilað hundinum eftir að hann át vegabréfin. Hann hafi í raun verið óalandi og hún hefði reynt ýmislegt til að þjálfa hann, „en það bara gekk ekki upp,“ sagði hún. Bætti hún við að hundurinn hefði verið með svo mikinn aðskilnaðarkvíða að hann gat ekki verið einn í tíu mínútur.

Bætti Allen við að hundaþjálfari hafi komið að málinu og allir verið sammála um að best væri að finna nýtt heimili fyrir hundinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég held að reiði hafi verið orkan sem kom þessum skrifum að stað.  Ég var bara orðin of reið yfir því að fólk skildi mig ekki“

„Ég held að reiði hafi verið orkan sem kom þessum skrifum að stað.  Ég var bara orðin of reið yfir því að fólk skildi mig ekki“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Seldist upp á 5 mínútum á Vitringana 3

Seldist upp á 5 mínútum á Vitringana 3
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fyrrverandi J.Lo sendi óræð skilaboð eftir stóru skilnaðartíðindin

Fyrrverandi J.Lo sendi óræð skilaboð eftir stóru skilnaðartíðindin
Fókus
Fyrir 4 dögum

Komin með nóg af Airbnb út af græðgi og kröfum leigusala – „Hvenær varð Airbnb svona hræðilegt?“

Komin með nóg af Airbnb út af græðgi og kröfum leigusala – „Hvenær varð Airbnb svona hræðilegt?“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kynlíf með eiginkonunni og frænda hennar svo gott að hann vill opna sambandið

Kynlíf með eiginkonunni og frænda hennar svo gott að hann vill opna sambandið
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Þessi markmiðasækni var orðin að fíkn hjá mér“

„Þessi markmiðasækni var orðin að fíkn hjá mér“