Söng- og leikkonan Jennifer Lopez og leikarinn og leikstjórinn Ben Affleck eru að skilja eftir tveggja ára hjónaband.
J.Lo sótti um skilnað á mánudaginn en það hafa verið háværar sögusagnir um yfirvofandi sambandsslit á kreiki síðan í vor.
Samkvæmt heimildum Page Six byrjuðu hjónabandserfiðleikarnir í brúðkaupsferðinni. Þau fóru til Lake Como á Ítalíu og voru mynduð í bak og fyrir af paparazzi ljósmyndurum.
„[Affleck] var ekki ánægður með að paparazzi hafi verið að elta þau. Hún er heimsfræg stórstjarna og hann lét eins og það kæmi honum á óvart að einhver væri að elta þau,“ sagði heimildarmaður náinn parinu.
Hann sagði einnig að þegar þau voru ekki fyrir framan myndavélarnar hafi andað köldu á milli þeirra. „Þetta átti að vera hamingjusamasti tími ævi þeirra en þau yrtu varla á hvort annað. Hann þóttist vera breyttur maður, en hann náði ekki að halda því leikriti gangandi lengi.“