Fyrrverandi hafnaboltakappinn Alex Rodriguez sendi óræð skilaboð á mánudagskvöldið, en fyrr um daginn greindu fjölmiðlar frá því að söng- og leikkonan Jennifer Lopez hafði sótt um skilnað frá leikaranum og leikstjóranum Ben Affleck.
Jennifer og Alex, eða A-Rod eins og hann er kallaður, byrjuðu saman í febrúar 2017 og trúlofuðu sig í mars 2019. Þau hættu saman í apríl 2021 og gáfu út sameiginlega yfirlýsingu um að þau hafi áttað sig á að þau væru betri vinir en par.
Seinna sama ár tóku Jennifer og Ben aftur saman eftir um sautján ára aðskilnað. Þau byrjuðu fyrst saman árið 2002 og var mikið fjölmiðlafár í kringum samband þeirra. Þau trúlofuðust ári seinna en slitu sambandinu í lok árs 2003, örfáum dögum áður en þau ætluðu að ganga í það heilaga.
Í vor fór skilnaðarorðrómur að ganga og staðfesti leikkonan það á mánudaginn þegar hún sótti um skilnað frá leikaranum á tveggja ára brúðkaupsafmæli þeirra.
Sjá einnig: J.Lo gæti verið í vandræðum – Skrifuðu ekki undir kaupmála
A-Rod deildi óræðum skilaboðum á samfélagsmiðlum eftir að skilnaðartíðindin bárust:
„Þú ferð aðra hvora leiðina, þú gætir alveg eins verið manneskjan sem ákveður hvert.“
Margir telja þetta tengjast J.Lo þar sem hún sótti sjálf um skilnað og lagði sjálf fram skjölin án þess að lögfræðingur hennar væri viðstaddur.
Undanfarin ár hafa verið háværar sögusagnir um að A-Rod hafi haldið framhjá J.Lo.
Í mars 2019, sama mánuð og þau trúlofuðust, hélt breska Playboy-fyrirsætan Zoe Gregory því fram að hún og A-Rod hafi átt í kynferðislegu sambandi. Hún sagði hann hafa sent sér fjölmörg skilaboð af kynferðislegum toga og hafi meðal annars beðið sig um að koma í trekant.
Önnur kona steig fram í maí í fyrra, raunveruleikastjarnan Madison LeCroy. Hún sagði að A-Rod hafi sent henni skilaboð árið 2020. Hún sagði að það hafi verið „augljóst“ að hann hafi verið að leita að „viðhaldi“. Fimmtán ár eru á milli þeirra, hún er 32 ára og hann er 47 ára.