Þetta var í níunda skipti sem fegurðarsamkeppnin fer fram. Lilja Sif Pétursdóttir hlaut titilinn í fyrra. Í öðru sæti var Helena Hafþórsdóttir O’Connor og fékk hún titilinn Miss Supranational Iceland.
Emilía Þóra Ólafsdóttir, 18 ára, valin Miss Supranational Iceland 2024.
„Sóldís Vala er 18 ára gömul og er búin með annað árið í menntaskóla. Hún stefnir á að læra flugmanninn að lokinni menntaskólagöngu. Sóldís hefur mjög fjölbreytt áhugamál en hennar aðaláhugamál er hreyfing og heilsutengd málefni. Hún æfði fimleika í tíu ár,frá tveggja ára aldri, og færði sig svo í fótbolta. Hún hefur einnig mikinn áhuga á tísku og förðun, sem hefur þróast frá æsku. Sóldís er sjálfstæð og metnaðarfull og mjög opin fyrir að auka styrkleika sína á ólíkum sviðum og er ófeimin við að fara út fyrir þægindarammann.“
„Emilía Þóra er fædd í febrúar árið 2006, og er því 18 ára gömul. Alveg síðan hún man eftir sér hefur hún verið ákveðin, jákvæð og virk í félagslífinu. Hún er uppalin í Grindavík en býr núna á Álftarnesi. Hún er að byrja sitt þriðja og síðasta ár í Verzlunarskóla Íslands á nýsköpunar- og listabraut. Emilíu hefur alltaf dreymt um að skara fram úr sem leik- og söngkona og stefnir á að vinna við það í framtíðinni. Hún hefur mikinn áhuga á samfélaginu og elskar að læra eitthvað nýtt. Hennar helsta markmið í lífinu er að mynda heilbrigð sambönd og vera fyrirmynd.“