fbpx
Þriðjudagur 29.apríl 2025
Fókus

Dimma eftir Ragnar Jónasson í sjónvarpið – Sjáðu stikluna

Fókus
Þriðjudaginn 13. ágúst 2024 13:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síminn og CBS/Paramount sýna þáttaröðina Dimmu sem byggð er á metsölubók Ragnars Jónassonar. Fyrsti þáttur verður frumsýndur í Sjónvarpi Símans Premium fimmtudaginn 12. september næstkomandi.

Þáttaröðin gerist öll á Íslandi og skartar sænsku leikkonunni Lenu Olin í aðalhlutverki. Hún fer með hlutverk rannsóknarlögreglukonunnar Huldu Hermannsdóttur, sem rannsakar skelfilegt morðmál á sama tíma og hún glímir við eigin persónulegu djöfla. Hulda er að fara á eftirlaun fyrr en áætlað var og neyðist til að taka sér nýjan samstarfsmann. Hún er staðráðin í að finna morðingjann, hvað sem það kostar.

Sænski leikstjórinn Lasse Hallström, sem þrívegis hefur verið tilnefndur til óskarsverðlauna, leikstýrir þáttaröðinni. Þættirnir eru framleiddir af Stampede Ventures og íslenska framleiðslufyrirtækinu Truenorth fyrir CBS / Paramount. Framleiðendur Truenorth eru Kristinn Þórðarson og Leifur B. Dagfinnsson, en John Paul Sarni og Greg Silverman framleiða fyrir Stampede.

Breski leikarinn Jack Bannon, sem lék aðalhlutverkið í HBO þáttaröðinni Pennyworth, leikur nýja samstarfsmann Huldu. Aðrir leikarar í veigamiklum hlutverkum eru Douglas Henshall, Þorsteinn Bachmann, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Ólafur Darri Ólafsson og Björn Hlynur Haraldsson.

„Það er risavaxið verkefni fyrir íslenska aðila að vinna með risum eins og CBS og Paramount sem hafa í tugi ára framleitt eitthvað það besta sjónvarpsefni sem til er í heiminum. Mikill lærdómur og heiður er fólginn í því fyrir Símann að vinna með öllu þessu reynslumikla fólki, stórstjörnum og rjóma alþjóðlegrar framleiðslu og við erum stolt af því hversu margir Íslendingar koma að þáttunum, bæði fyrir framan myndavélarnar og fyrir aftan þær. Íslenskur framleiðsluiðnaður er nefnilega í fremstu röð.“

„Við hjá Truenorth erum mjög stolt af sjónvarpsþáttaseríunni Dimmu og hversu vel til tókst. Það voru forréttindi að fá Lasse Hallström til landsins til að leikstýra seríunni. Ragnar Jónasson samdi bók á heimsmælikvarða sem margir hafa þegar lesið og allur leikarahópurinn var stórkostlegur,“ segir Kristinn Þórðarson framleiðandi hjá Truenorth.

Horfðu á stikluna hér að neðan.

play-sharp-fill
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Gaman að geta haldið uppi stuðinu með gítarleik

Gaman að geta haldið uppi stuðinu með gítarleik
Fókus
Fyrir 2 dögum

Karla Sofía Gascón: „Trans fólk mun aldrei hverfa, sama hversu mikið einhver reynir“

Karla Sofía Gascón: „Trans fólk mun aldrei hverfa, sama hversu mikið einhver reynir“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Birti nektarmynd eftir að rifrildi við tengdamömmuna virðist hafa blossað upp á ný

Birti nektarmynd eftir að rifrildi við tengdamömmuna virðist hafa blossað upp á ný
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur taka eftir svakalegum mun á milli mynda – „Þetta er bilun“

Aðdáendur taka eftir svakalegum mun á milli mynda – „Þetta er bilun“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Kærastinn var sífellt að saka hana um framhjáhald – Síðan kom tvöfalt líf hans í ljós

Kærastinn var sífellt að saka hana um framhjáhald – Síðan kom tvöfalt líf hans í ljós
Fókus
Fyrir 4 dögum

Stefán Einar og Sara Lind hafa ákveðið að skilja

Stefán Einar og Sara Lind hafa ákveðið að skilja
Hide picture