Bandaríski hjartaknúsarinn Tom Cruise, sem er 62 ára gamall, er sagður vera kominn með nýja kærustu. Um er að ræða spænsku söngkonuna Victoriu Canal . Söngkonan er aðeins 25 ára gömul og því hefur aldursmunur parsins, 37 ár, vakið nokkra athygli, sem og sú staðreynd að Canal fæddist einhent.
Canal og Cruise eru sögð hafa kynnst á Glastonbury-tónlistarhátíðinni í júní en þar sló sú spænska í gegn sem gestur bresku stórsveitarinnar Coldplay.
View this post on Instagram
Cruise og Canal smullu strax saman, að sögn kunnugra, en nokkrum dögum síðar bauð hann henni á frumsýningu stórmyndarinnar Twisters í London. Stuttu síðar var hún gestur hans á tökustað myndar hans, Mission Impossible 8, en fáheyrt þykir að Cruise geri slíkt enda lætur hann yfirleitt allt annað víkja fyrir vinnu sinni. Það þykir til marks um að alvara sé að færast í sambandið.