Bandaríska leikkonan Sharon Stone er á batavegi eftir að hafa fengið glóðarauga í fríi í Tyrklandi.
„Þessi ferð hefur verið erfið, en ég er harðari,“ skrifaði Stone á Instagram á miðvikudag.
View this post on Instagram
Leikkonan sem er 66 ára gaf lítið upp um hvernig glóðaraugað kom til. En fylgjendur hennar sendu henni hlýjar kveðjur með ósk um skjótan bata.
Síðustu tvær vikur hefur Stone notið sín í fríi í Evrópu og ferðast til Cannes, Rómar og Frakklands, auk Tyrklands.
Á miðvikudag sýndi hún einnig frá hótelinu sem hún gisti á í Tyrklandi. Áður en hún hélt þangað birti hún myndir af sér á gangi um götur Rómar með 19 ára syni sínum, Laird, sem nýlega útskrifaðist úr menntaskóla og mun brátt byrja í læknanámi. Á Ítalíu mætti Stone á Taormina kvikmyndahátíðina, þar sem hún tók við Golden Cariddi verðlaunum fyrir afrek hennar í leiklistinni.
View this post on Instagram
View this post on Instagram