Kántrítónlistarkonan Carrie Underwood mun taka við dómarasæti Katy Perry í sjónvarpsþáttunum American Idol. Underwood stóð uppi sem sigurvegari fjórðu þáttaraðar, en mun setjast í dómarasætið í þeirri 23 á næsta ári.
Perry hneykslaði aðdáendur í febrúar þegar hún tilkynntii að hún væri að yfirgefa þættina.
„Ég elska Idol svo mikið,“ sagði hún í spjallþættinum Jimmy Kimmel Live!. „Þeir tengja mig við hjarta Ameríku, en mér finnst ég þurfa að fara út og finna púlsinn í takt við minn eigin takt.“
Perry tilkynnti síðar að ný plata hennar sem ber titilinn 143 kæmi út í september.
Perry settist í dómarasæti American Idol ásamt Luke Bryan og Lionel Richie eftir að þættirnir, sem Ryan Seacrest hefur kynnt frá upphafi, voru færðir frá Fox til ABC í 16. þáttaröðinni.
Page Six greindi frá því á sínum tíma að Perry hefði fengið 25 milljónir dala í laun, meira en tvöföld laun Bryan og Richie, vegna þess að hún höfðaði til „yngri áhorfenda“ og hafði „mikið fylgi á samfélagsmiðlum“. Launamunurinn olli ekki misklíð meðal dómaranna og hefur þeim komið vel saman í sjö þáttaröðum.