Cortez er fylgdarkona, fyrirsæta, klámstjarna og hlaðvarpsstjórnandi. Hún var valin besta fylgdarkona Ástralíu árið 2024 á AAIA verðlaunahátíðinni.
Í samtali við news.com.au ræðir hún um kyrkingar og samþykki. Hún segir að þegar hún lenti fyrst í þessu sextán ára gömul hafi henni brugðið. „Þetta var sjokk og ég vissi ekki hvernig ég átti að bregðast við.“
Á þessum tíma var hún óreynd í kynlífi og umræðan um mörk og samþykki ekki jafn áberandi og nú.
„Ef hann hefði spurt mig fyrir fram hvort hann mætti kyrkja mig þá hefði ég örugglega sagt nei,“ segir hún.
Að kyrkja einhvern í kynlífi hljómar öfgakennt en það er orðið sífellt algengara, sérstaklega meðal ungmenna.
Háskólarnir við Melbourne og Queensland í Ástralíu framkvæmdu könnun um kynlífshegðun ungmenna og komust að því að rúmlega meirihluti þeirra eru að stunda kyrkingar í kynlífi.
Sérfræðingar hafa bent á vandann á bak við auknar vinsældir þessa „kynlífstrends.“
„Þetta er ekki öruggt, bara það að beita smá þrýstingi á hálsinn getur valdið alvarlegum skaða og hugsanlega dauða,“ segir prófessor Heather Douglas í samtali við news.com.au.
„Það sem veldur mestum áhyggjum er að þessi athöfn getur leitt til heilaskaða og því oftar sem fólk tekur þátt í kyrkingum því meiri líkur á heilaskaða. Fólk hefur oft ekki hugmynd um þetta.“
Cortez hefur lengi starfað í kynlífsiðnaðinum og segir kyrkingar algengt blæti hjá karlmönnum.
„Þegar ég var yngri byrjuðu fullt af gaurum að gera þetta. Ég held að þeir hafi séð þetta í klámi en kyrkingar í klámi er mjög algengt og verður sífellt algengara,“ segir hún og bendir fólki á að klám er ekki raunveruleikinn heldur fantasía.
„Alveg eins og í bíómyndum þá eru klámstjörnur fagmenn sem eru í vinnunni og hafa farið yfir hvað má og má ekki fyrir fram. Sama á við um kynlíf, það þarf að ræða hlutina áður, þetta snýst allt um samskipti.“
Cortez segir að karlmenn þurfi að skilja að kyrkingar séu ekki fyrir alla og það ætti aldrei að gera ráð fyrir því að einhver fíli það.
„Fólk verður að hafa í huga að fyrir suma geta kyrkingar verið ógnvekjandi og það ætti aldrei að gera það án leyfis,“ segir hún og bendir á að sumir hafa gengið í gegnum kynferðisofbeldi og önnur áföll og geti það verið einstaklega triggerandi að upplifa eitthvað eins og kyrkingar í kynlífi.