Söng- og leikkonan Bette Midler þakkar langvarandi hjónaband sitt þeirri staðreynd að hún og eiginmaður hennar sofa í sitt hvoru svefnherberginu. Og hafa gert það frá upphafi hjónabands þeirra, en þau hafa verið gift í tæp 40 ár.
„Maðurinn minn hrýtur,“ útskýrði Midler í viðtali við Entertainment Tonight í gær. Midler, sem er 78 ára, hefur verið gift Martin von Haselberg síðan 16. desember 1984. Giftu þau sig eftir að hafa þekkst í aðeins sex vikur.
Midler sagði að hjónaband þeirra hafi verið „stórkostlegt ferðalag“ og viðurkenndi að þau hefðu sofið í sitt hvoru svefnherginu frá upphafi sambandsins.
Fyrr í þessum mánuði rifjaði Midler upp „mjög hvatvísa“ ákvörðun sína um að biðja von Haselberg um að giftast sér. Eftir að hann sagði já hélt parið til Las Vegas þar sem Elvis eftirherma gifti þau í Starlight Chapel, sem er búið að loka í dag.
„Alltaf góð hugmynd,“ sagði hún í spjallþættinumToday With Hoda & Jenna. Hún sagðist líka vera hissa yfir því að hafa verið gift svona lengi. Í viðtali við People í nóvember árið 2014, þegar hjónabandið var að nálgast þrjá áratugi, sagði Midler að hún teldi að hjónaband hennar virkaði svo vel vegna þess að þau gefa hvort öðru pláss.
„Ég held að leyndarmálið sé að gefa hvert öðru mikinn slaka og mikið pláss og vera ekki alltaf ofan í hvort öðru,“ sagði hún og bætti við að það að hlusta á hvort annað og geta miðlan málum væru einnig mikilvægir þættir.
Hjónin eiga eina dóttur, Sophie von Haselberg, sem fæddist árið 1986. Midler segir dótturina sitt mesta afrek, en ekki eiga heiður ein. „Maðurinn minn er líklega besti faðir sem hefur lifað. Hann er frábær. Hann sá um allt þegar ég var frá heimilinu vegna vinnu.. Hann kenndi henni erlent tungumál. Hann kenndi henni að elda.“