fbpx
Fimmtudagur 25.júlí 2024
Fókus

Háklassa vændiskona rukkar 1,4 milljónir fyrir endaþarmsmök – „Ég held að karlmenn njóti þess að sjá konur í óþægilegum aðstæðum“

Fókus
Fimmtudaginn 25. júlí 2024 13:49

Skjáskot/TikTok

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kayla Jade er áströlsk háklassa vændiskona sem býður fulla þjónustu, eða full service (FS) eins og hún kallar það. Sem þýðir að hún býður upp á ýmsa kynlífsþjónustu gegn greiðslu.

Hún nýtur mikilla vinsælda á TikTok og leyfir áhugasömum að skyggnast á bak við tjöld vændisþjónustu.

Sjá einnig: Háklassa vændiskona fékk 650 þúsund krónur fyrir fjögurra tíma vinnu – „Ég myndi aldrei mæla með þessu starfi fyrir einhvern“

Kayla sagði netverjum frá nýlegum fundi með viðskiptavini.

„Ég er að gera mig tilbúna að fara að hitta viðskiptavin sem bað um endaþarmsmök. Ég hef aðeins stundað endaþarmsmök einu sinni áður með viðskiptavin og rukkaði hann fimmtán þúsund [ástralska dali],“ sagði hún. Það gerir um 1,4 milljónir íslenskra króna.

„Ég mun rukka þennan um það sama,“ sagði hún.

Kayla fær mjög oft beiðni um endaþarmsmök frá viðskiptavinum. „En þegar þeir heyra verðið þá hlaupa þeir í burtu, því hver hefur efni á þessu? En þessi gaur samþykkti verðið.“

@blueeyedkaylajade Grwm for work #storytime #grwm #dayinmylife ♬ original sound – blueeyedkaylajade

„Ég nýt þess alls ekki að stunda endaþarmsmök í einkalífi mínu. Ég vil frekar stunda „vanilla“ kynlíf […] En ég er tilbúin að gera það fyrir þetta verð,“ sagði hún.

„Ég er ekkert búin að borða í dag í undirbúningi fyrir þetta og tek töflur til að hægja á meltingunni. Hann er að borga allan þennan pening, ég vil ekki drulla hann út.“

„Ég held að karlmenn njóti þess að sjá konur í óþægilegum aðstæðum“

Kayla birti síðan annað myndband eftir að hún hitti viðskiptavininn.

„Það gekk allt eins og í sögu, hann var svo hreinn eftir þetta að þú hefðir getað borðað af honum,“ segir sagði hún.

„En varðandi athöfnina sjálfa, eins og ég sagði ykkur þá nýt ég þess ekki að gera þetta. Mér finnst eins og það sé verið að brjóta á mér, ég skil ekki af hverju gaurar vilja stunda endaþarmsmök. Þetta er bókstaflega gat þar sem úrgangur kemur út. Það er fullkomlega fínt gat þarna við hliðina á. Ég held að karlmenn njóti þess að sjá konur í óþægilegum aðstæðum.“

@blueeyedkaylajade Update #storytime #dayinmylife #makemoneyfromhome ♬ original sound – blueeyedkaylajade

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Snýr aftur heim
Fókus
Fyrir 2 dögum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Prinsinn orðinn 11 ára – Mamman myndar afmælisdrenginn

Prinsinn orðinn 11 ára – Mamman myndar afmælisdrenginn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jón Viðar og Sigga eiga von á barni

Jón Viðar og Sigga eiga von á barni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Unnur Óla með eigin útgáfu af ,,Hawk Tuah“

Unnur Óla með eigin útgáfu af ,,Hawk Tuah“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Heilabrot: Það sem þú sérð fyrst segir til um örlög þín

Heilabrot: Það sem þú sérð fyrst segir til um örlög þín
Fókus
Fyrir 4 dögum

Börnin gátu ekki afborið að horfa upp á Paul Young gifta sig að nýju

Börnin gátu ekki afborið að horfa upp á Paul Young gifta sig að nýju