Bandaríski leikarinn Pete Davidson hefur hætt neyslu á öllum efnum, nema einu.
„Ég get ekki hætt í grasinu, það er það eins sem er eftir,“ sagði leikarinn við áhorfendur sína á Pete Davidson: Rehab Tour sýningu í Atlantic City á laugardag.
„Ég notaði kókaín og ketamín og allar pillurnar og allt þetta drasl. Það eina sem er eftir er gras, þannig að ég er næstum orðinn hreinn, en ég ætla að reykja það aðeins lengur.“
Í ágúst 2023 greindi Page Six frá því að Davidson notaði ketamín til að meðhöndla þunglyndi sitt. Á þeim tíma var hann nýkominn úr meðferð eftir að hafa leitað sér aðstoðar til að takast á við áfallastreituröskun sína og persónuleikaröskun.
„Pete fer reglulega í meðferð til að „stilla sig af“ og taka sér andlegt hlé, svo það er það sem er að gerast,“ útskýrði heimildamaður.
Nokkrum mánuðum fyrir þá meðferð, í mars 2023, lenti Davidson í bílslysi ásamt þáverandi kærustu Chase Sui Wonders. Keyrði hann með ofsahraða á brunahana og þaðan inn í bílskúr nærliggjandi einbýlishúss. Leikarinn gerði lítið úr slysinu á laugardag eftir að hafa fengið þær fregnir að ákæra á hendur honum vegna málsins hefði verið felld niður. Sagðist hann ekki hafa séð stöðvunarmerki og ákveðið að keyra inn á heimilið í stað gangandi vegfaranda.
„Ég sá húsið og ég hugsaði: „Ég held að þú getir ekki dáið ef þú lendir í húsi.“ Venjulega í sjónvarpsþáttum keyra þeir bara í gegnum það,“ sagði hann í viðtali við Daily Mail. „Þannig að ég beygði og stefndi að húsinu og ég lenti reyndar nokkuð vel í bílskúrnum. Jafnvel þegar ég er verstur, þá er ég frekar mikið með þetta,“ sagði Davidson sem viðurkenndi þó að vera smeykur um að eiga hugsanlega eftir að fara í fangelsi vegna atviksins.
Dómari dæmdi hann til að ljúka 50 samfélagsþjónustustímum og fara í ökunám um öruggan akstur. Hann þurfti einnig að „heimsækja bæði sjúkrahús og líkhús til að sjá afleiðingar áhættusamra ákvarðana í umferðinni.“
„Ég var bara, má ég bara fara í fangelsi í einn dag? Þetta virðist vera sex vikna vinna,“ sagði Davidson.