fbpx
Mánudagur 15.júlí 2024
Fókus

Guðbjörg bjó ein 12 ára gömul og allir vissu það en enginn gerði neitt – „Þetta var auðvitað mikil höfnun“

Fókus
Mánudaginn 15. júlí 2024 15:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðbjörg Ýr Valkyrja Guðbjargardóttir er 44 ára kona sem var alin upp við alkóhólisma, mikla vanrækslu og andlegt ofbeldi. Hún er nýjasti gestur hlaðvarpsins Sterk saman en þar deilir hún erfiðri áfallasögu sem hófst strax í æsku.

Bjó alein 12 ára gömul

„Ég er fyrsta barn foreldra minna og fékk strax á unga aldri að finna fyrir því að ég væri ekki velkomin og ekki eins og mamma vildi hafa mig.“

Guðbjörg fékk ítrekað að heyra að hún væri bæði ljót og feit. Hún var barn sem fékk þau skýru skilaboð frá sínu nánasta umhverfi að hún væri ekki samþykkt. Hún ólst upp úti á landi en aðeins 12 ára gömul var hún sendi í bæinn þar sem hún dvaldi fyrst á sjúkrahúsi en var síðan gert að leigja sér herbergi í Reykjavík á meðan yngri bræður hennar tveir bjuggu áfram úti á landi.

„Ég bjó ein og gekk í Hagaskóla. Það vissu það allir. Þetta var auðvitað mikil höfnun. Ég leigði herbergi hjá stelpu. Það var alltaf verið að segja mér, bæði beint og óbeint, að ég væri fyrir og ekki velkomin.“

Þegar Guðbjörg gekk í 10. bekk var hún farin að leigja hjá annarri ungri stelpu sem djammaði mikið og fór hún þá sjálf að drekka mikið. Hún fann að það var léttir að þurfa ekki að vera hún sjálf. Hún var alltaf hávær og svaraði fyrir sig, þar til kannabisefni komu til sögunnar, seinni hluta 10. bekkjar. Allt í einu sat hún aftast í bekknum, þagði og einkunnir fóru að lækka en aldrei var barnavernd sett inn í hennar mál. Það er undarlegt að hugsa til þess að 12 til 15 ára gamalt barn búi eitt, sé byrjað í neyslu, hafi orðið fyrir vanrækslu. Hvað þá þegar þessar staðreyndir komu fram í skýrslum frá sjúkrahúsi þar sem tekið er fram að grípa þurfi barnið, en engu að síður var barnavernd ekki kölluð til.

Á flótta undan sjálfri sér

Faðir Guðbjargar fór til Grænlands að vinna eitt árið og tók hana með sér í nokkrar vikur til að aðstoða sig, hún var alltaf dugleg til vinnu. Hún var unglingur og endaði ein á hreindýrabúi þar sem hún var áreitt kynferðislega.

Neysla Guðbjargar var sveiflukennd og komu tímabil þar sem hún var edrú og önnur þar sem neyslan var mikil.

„Ég var alltaf á flótta undan sjálfri mér og byggði virði mitt á því að vera dugleg að vinna því mér var sagt að ég væri ekki nóg á öðrum sviðum.“

Árið 2015 steig Guðbjörg fram og sagði frá því að pabbi hennar væri ekki hetjan sem hann var málaður upp sem í fjölmiðlum. Faðir hennar, Sigurður Pétursson, hefur gjarnan verið kallaður Ísmaðurinn í fjölmiðlum en hannn komst í fréttirnar árið 2015 vegna sjávarháska sem hann lenti í á leið sinni frá Bolgungarvík til Grænlands.

„Ég gat ekki setið á mér. Hann flutti til Grænlands og barnaði stelpu í tíunda bekk, verandi 63 ára. Ég fékk yfir mig þvílíkan viðbjóð og fólk jafnvel sakaði mig um að geta ekki unað föður mínum að vera hamingjusamur.“

Fólk jós yfir hana fúkyrðum og setti út á útlit hennar.

„Ég benti á að þetta myndi horfa öðruvísi við ef um íslenska stúlku og grænlenskan mann væri að ræða.“

Missti fjölskylduna þegar hún sagði frá

„Ég get uppljóstrað því núna, fyrst mamma er dáin, að hún sagðist hafa verið stolt af mér fyrir að hafa sagt frá þessu. Ég missti fjölskylduna mína í kjölfarið.“

Hún þráði viðurkenningu, fór úr einu ofbeldissambandi í annað.

Eitt samband var með miklum ofbeldismanni og narsisista sem seldi henni ákveðna ímynd af sér í upphafi en raunveruleikinn var svo annar.

Á þessum tíma hafði Guðbjörg farið í hjáveituaðgerð og misst 99 kíló á átta mánuðum. Hún kunni ekki á athyglina sem hún fékk og þekkti ekki sjálfa sig.

„Ég bauð honum svo með mér til Dalvíkur í ferð sem ég fékk í fertugsafmælisgjöf. Um kvöldið var hann með annarri konu, ég bað hann að hætta, hún réðst á mig og beit mig út um allt. Ég, í sjokki, fór með honum inn í hús þar sem hann henti mér í rúmið og nauðgaði mér. […] Hann átti að vera besti vinur minn, þetta er eitt erfiðasta áfall sem ég hef þurft að upplifa, þrátt fyrir öll hin.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Beverly Hills höll Bennifer formlega komin í sölu – Sjáðu myndirnar

Beverly Hills höll Bennifer formlega komin í sölu – Sjáðu myndirnar
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hollywood-stjarna svarar til saka fyrir voðaskot – Næstu stóru sjónvarpsréttarhöldin hefjast í dag

Hollywood-stjarna svarar til saka fyrir voðaskot – Næstu stóru sjónvarpsréttarhöldin hefjast í dag
Fókus
Fyrir 6 dögum

Margrét varð ófrísk 17 ára og þurfti að berjast fyrir skólagöngunni -„Starfsfólk sem hélt bara ekkert með mér“

Margrét varð ófrísk 17 ára og þurfti að berjast fyrir skólagöngunni -„Starfsfólk sem hélt bara ekkert með mér“