Leikkonan Shannon Doherty er látin, aðeins 53 ára að aldri, eftir langvinna baráttu við brjóstakrabbamein.
Doherty skaust upp á stjörnuhiminn í sjónvarpsþáttunum Beverly Hills 90210 sem nutu gríðarlega vinsælda hérlendis sem og á heimsvísu á sínum tíma. Þá fór hún einnig með aðalhlutverk í sjónvarpsþáttunum Charmed sem sömuleiðis slógu í gegn.
Doherty greindist með brjóstakrabbamein árið 2015. Árið 2019 greindist hún aftur með krabbamein og ekki löngu síðar hafði meinið dreift sér og var komið í heilann. Í viðtali við People í nóvember í fyrra greindi hún frá því að krabbameinið væri komið í beinin og stutt væri eftir.
Þá stofnaði Doherty hlaðvarpið Let‘s Be Clear síðasta haust þar sem hún ræðir um líf sitt, leiklistarferilinn, sambönd og baráttuna við krabbameinið.