Hún er með yfir 1,2 milljónir fylgjenda á TikTok og er þekkt fyrir að deila lífi sínu í húsbíl, en undanfarin þrjú ár hefur hún búið í húsbíl.
Það þýddi því ekkert annað en að leigja fjórhjóladrifinn jeppa útbúinn sem lítinn húsbíl við komu sína til Íslands en Abigail er ein á ferð sinni um landið.
Hún hefur birt nokkur myndbönd frá ferðinni, eins og þegar hún fór í búð og keypti í matinn
„Íslendingar eru svo vingjarnlegir, allir hafa verið svo hjálpsamir,“ sagði hún.
@abigailmartiin WERE IN ICELAND BABYYYY🕺🏼 stay tuned for daily updates 🤭 #travel #solotravel #iceland #vlog #travelvlog #icelandvlog ♬ оригинальный звук – timaeqq
Svo lenti hún í heldur óheppilegu atviki. Eins og fyrr segir er Abigail einnig OnlyFans-stjarna og ákvað að taka upp efni fyrir síðuna sína í Reynisfjöru þegar hópur af ferðamönnum kom að henni.
„Ég var alein í Reynisfjöru að taka upp fyrir [OnlyFans] og hópur af fólki keyrði framhjá mér, aðeins þremur metrum frá mér og var alveg: „Yeah girl! Get it!“ Og þau tóku upp myndband af mér. Ég var alveg: „Hææ!“ Og veifaði þeim,“ sagði hún hlæjandi.
„Guð minn góður, þetta var hræðilegt.“
@abigailmartiinOF COURSE THIS WOULD HAPPEN 🫠😂♬ original sound – Abigail Martin