Bandaríski leikarinn og sjónvarpskynnirinn Nick Cannon er búinn að tryggja eistun á sér fyrir tíu milljónir dala eða rúmlega einn milljarð íslenskra króna. Cannon sem er 43 ára á tólf börn á aldrinum 2-13 ára, með sex konum.
„Ég varð að tryggja verðmætustu eignir mínar,“ segir Cannon hlæjandi í viðtali við Entertainment Tonight.
„Vegna þess að þú heyrir um allt þetta fræga fólk sem tryggir fæturna á sér og ég hugsaði: „Hey, jæja, ég verð að tryggja verðmætasta líkamshlutann minn.“
Á meðal þeirra sem það hafa gert er söngkonan Mariah Carey, sem er einmitt fyrsta barnsmóðir og fyrrum eiginkona Cannon, en þau eiga saman tvíbura sem eru fæddir árið 2011.
Carey er með fótleggina tryggða fyrir eina milljón dala eða tæplega 140 milljónir íslenskra króna, og einnig lét hún tryggja raddböndin fyrir sömu upphæð.
Þrátt fyrir að eistun séu nú tryggð gaf Cannon ekkert upp með hvort fleiri börn séu á leiðinni eða fyrirhuguð.
View this post on Instagram
Viðtalið var tekið í tveggja ára afmælisveislu sonarins Legendary sem Cannon á með núverandi kærustu sinni Bre Tiesi. Hann á þrettán ára tvíburana Monroe and Moroccan með Mariah Carey, Golden Sagon, sjö ára, Powerful Queen, þriggja ára, og Rise Messiah, eins árs, með Brittany Bell, tvíburana Zion Mixolydian og Zillion Heir, þriggja ára, og Beautiful Zeppelin, eins árs, með Abby De La Rosa, Onyx Ice Cole, eins árs, með LaNisha Cole og Halo, eins árs, með Alyssa Scott.
Zen, sonur Cannon og Scott lést úr krabbameini aðeins fimm mánaða gamall árið 2021.