Hugh Hefner var stofnandi, útgefandi og aðalritstjóri Playboy-tímaritsins. Hann lést 91 árs að aldri árið 2017 og skildi eftir sig eiginkonu og fjögur börn.
Það voru ekki aðeins kærustur Hugh Hefner sem bjuggu á setrinu heldur bjó þar einnig fleira fólk, eins og læknir hans, Mark Saginor, kallaður Dr. Feelgood, og dóttir hans, Jennifer Saginor.
Jennifer var aðeins ellefu ára þegar hún flutti í Playboy-höllina og lýsir árunum sínum þar í heimildarmyndinni Secrets of Playboy.
Árið var 1971 þegar Jennifer flutti inn á setrið ásamt föður sínum. Hún rifjar upp þann tíma og segir að fyrst hafi þetta verið „töfrandi“ staður.
Síðan hafi brestir byrjað að myndast og hún fór að skilja betur hvað færi fram á bak við luktar dyr.
„Hef var vanur að kyssa með opinn muninn, svona blautum kossi. Mér fannst alltaf skrýtið að einhver sem var eins og frændi minn myndi kyssa svona, en pabbi minn sagði að þetta er það sem fólk gerir þegar það elskar hvort annað,“ sagði hún.
„Það hefur tekið mig langan tíma að gera upp æskuna og það sem ég gekk í gegnum og hvernig mér líður varðandi það.“
Jennifer segir að vegna þess að hún var svo ung þegar hún flutti þangað inn og varð hluti af þessum heimi, þá hafi hún fundið fyrir hliðhollustu gagnvart Hefner og hans innsta hring og vissi að ef hún myndi brjóta það traust þá yrðu „alvarlegar afleiðingar.“
„Þetta var svo skrýtinn og ruglaður staður,“ bætti hún við.
Jennifer segir að þegar hún var yngri þá var Hefner til í að gera allt fyrir hana, hún kallaði hann meira að segja frænda. En þegar hún varð eldri breyttist það.
Jennifer féll fyrir einni kærustu Hefner og þær sváfu saman, þegar Jennifer var enn undir lögaldri. Hún segir að Hefner hafi vitað af þessu þar sem hann var með myndavélar um allt hús. Þegar hún varð sautján ára kallaði Hefner hana inn í herbergi til sín, þar sem hann var uppi í rúmi með umræddri kærustu.
Jennifer gaf út bókina Playground: A Childhood Lost Inside the Playboy Mansion árið 2004.