Hjónin Pétur G. Markan bæjarstjóri í Hveragerði og Margrét Lilja Vilmundardóttir prestur hafa sett einbýlishús sitt við Austurgötu í Hafnarfirði á sölu.
Húsið er 98 fm járnklætt timburhús á tveimur hæðum, byggt árið 1906. Ásett verð er 91,9 milljónir. Vísir greinir frá
Húsið skiptist í tvær samliggjandi stofur, eldhús, baðherbergi og forstofu á neðri hæð. Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi og útgengt úr einu þeirra á vestursvalir. Við húsið er fallega gróin og afgirt lóð með timburverönd.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.