Eigendur veitingastaðarins Manita í Toronto gripu til heldur óvenjulegra aðgerða um helgina til þess að ná sér niður á frekri Hollywood-stjörnu. Á Instagram-síðu veitingastaðarins birtist mikill reiðilestur yfir Hollywood-stjörnunni Zachary Quinto þar sem leikarinn var taggaður og tekinn til bæna.
Var Quinto sagðust hafa öskrað á starfsfólk veitingastaðarins eins og frekt barn eftir að hafa ekki fengið borð á staðnum eins og hann ætlaði. Ástæðan var sú að leikarinn hafði ekki brugðist við tveimur textaskilaboðum um að borð handa honum væri klárt og þegar hann loks mætti á svæðið, nokkru síðar, brást hann víst ókvæða við þegar að allt var orðið fullt. Í færslunni kom fram að starfsfólk staðarins hafi grátað undan svívirðingum leikarans og aðrir viðskiptavinir hafi upplifað mikil óþægindi vegna framkomu hans.
„Herra Quinto, farðu eitthvað annað með ömurlegt viðhorf þitt. Fjölmargar yndislegar stjörnur heimsækja veitingastaðinn okkar en þú ert ekki einn af þeim,“ segir í færslunni hvössu sem hefur vakið talsverða athygli.