fbpx
Mánudagur 15.júlí 2024
Fókus

Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland 2024

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 21. maí 2024 10:02

Myndir/Arnór Trausti

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fegurðarsamkeppnin Ungfrú Ísland fer fram í níunda skipti þann 14. ágúst næstkomandi í Gamla Bíó. Keppendurnir í ár eru 24 samtals og hafa verið opinberaðir á Instagram-síðu Ungfrú Ísland.

Lilja Sif Pétursdóttir hlaut titilinn í fyrra. Í öðru sæti var Helena Hafþórsdóttir O’Connor og fékk hún titilinn Miss Supranational Iceland.

Sjá einnig: Hefur þroskast mikið sem manneskja í gegnum þetta ferli

Sjáðu stúlkurnar sem keppa um titilinn í ár hér að neðan.

Kristín Anna. Mynd/Arnór Trausti

Kristín Anna Jónasdóttir

„Kristín Anna er fædd í Hafnarfirði í september 2001, og er því að verða 23 ára á árinu. Hún útskrifaðist frá Kvennaskólanum í Reykjavík og stundar nú fjarnám í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst, en áætlun hennar að færa sig yfir í Háskólann í Reykjavík. Kristín Anna hefur alltaf haft mikinn áhuga á heilsu- og snyrtifræði, sem leiddi hana til þess að sækja námskeið hjá Reykjavík Makeup School og Magnetic Nails, ásamt því að taka LPG meðferðarnámskeið. Kristín Anna hefur einnig verið mikið í dansi. Hún kemur úr stórri fjölskyldu, þar sem hún á fimm systur og er sjálf eineggja tvíburi, og hefur því alltaf verið mjög fjölskyldumiðuð.“

Þórdís Ásta. Mynd/Arnór Trausti

Þórdís Ásta Ingvarsdóttir

„Þórdís Ásta er nýorðin 24 ára og er fædd og uppalin í Keflavík og býr þar. Hún hefur alltaf elskað börn og í dag vinnur hún með börnum á leikskólanum Gimli, kærleiksríkum hjallastefnuleikskóla í Reykjanesbæ. Hún elskar vinnuna sína og hlakkar alltaf mikið til að mæta til vinnu. Hennar mesta ástríða í lífinu er tónlist, að syngja, búa til tónlist, semja texta og allt sem tengist tónlist. Síðastliðin tvö ár hefur Þórdís Ásta lært mikið um sig sjálfa, stækkað mikið sem persóna og nú langar hana að hvetja aðra til hið sama.“

Hera Björk. Mynd/Arnór Trausti

Hera Björk Arnarsdóttir

„Hera Björk er á nítjánda ári og er úr Garðabænum. Hún er á félagsvísindabraut í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og vinn sem vaktarstjóri á Joe and the Juice í Smáralind. Hún hefur ótrúlega gaman af hreyfingu og íþróttum, þá sérstaklega körfubolta þar sem hún er nýhætt að æfa en hún var í meistaraflokki Stjörnunar. Hún elskar að vera með sínum nánustu vinkonum, gera sig til og fara eitthvað skemmtilegt. Heru finnst mjög mikilvægt að vera duglega að safna góðum minningum með sínu nánasta fólki.“

Alica. Mynd/Arnór Trausti

Alice Alexandra Flores

„Alice Alexandra er tvítug og búsett í Bláskógabyggð, og hefur verið frá fjögurra ára aldri. Pabbi hennar er frá Hondúras, móðuramma hennar er frönsk og móðurafi er íslendingur. Þrátt fyrir fjölbreyttan uppruna er hún fædd og uppalin á Íslandi. Alice talar þrjú tungumál reiprennandi (íslensku, ensku og spænsku) og getur einnig bjargað sér á frönsku. Hún útskrifaðist með stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Suðurlands árið 2022. Alice vinnur sem leiðbenandi í leikskóla og elskar starfið sitt. Í framtíðinni vill hún fara í Háskóla Íslands að læra fjölmiðlafræði eða ferðamálafræði. Hún elskar íþróttir, förðun, dýr, sögu Íslands og annarra landa. Hún hefur ánægju af að ferðast og vonast til að geta gert meira af því í framtíðinni. Hún á auðvelt með að kynnast og myndast tengsl við fólk af ólíkum uppruna og óháð aldri. Hún á stóra fjölskyldu sem er einstök og mikilvægasti parturinn í hennar lífi.“

Helena. Mynd/Arnór Trausti

Helena Guðjónsdóttir

„Helena er 19 ára, verða tvítug í desember. Hún er fædd og uppalin í Laugardalnum í Reykjavík en bjó í eitt ár í Þýskalandi. Hún er útskrifuð úr Verzlunarskóla Íslands og er að taka sér pásu frá námi til að safna pening áður en hún fer í háskóla. Hún vinnur núna á íbúðarkjarna fyrir fólk með einhverfu og það getur verið mjög krefjandi á köflum en á sama tíma lærdómsríkt og skemmtilegt. Annars hefur Helena mikinn áhuga á tísku og öllu sem því fylgir ásamt því að elska að ferðast, prófa nýja hluti og eiga góðar stundir með skemmtilegu fólki.“

Alsatisha. Mynd/Arnór Trausti

Alsatisha Sif Amon

„Sasha er 25 ára með mikinn áhuga á tísku, söng og leiklist. Hún tók þátt í söng- og leiklist sem unglingur, og var módel í útskriftarsýningu Tækniskólans 2019 og lenti þar í 3.sæti. Hún vinnur á leikskóla sem stuðningur og svo á hún líka son sjálf. Sem móðir og starfsmaður á leikskóla finnst henni mjög mikilvægt að vera sterk og hvetjandi fyrirmynd. Henni hefur alltaf langað að koma fram og verða leikkona en hefur verið feimin og óörugg með sjálfa sig. Sasha reynir samt alltaf að vera besta útgáfan af sjálfri sér og gefa frá sér góða strauma. Með því vill hún koma fram og láta ljósið skína og vera sterk fyrirmynd fyrir þjóðina okkar.“

Matthildur Emma. Mynd/Arnór Trausti

Matthildur Emma Sigurðardóttir

„Matthildur Emma er 18 ára gömul. Hún er frá Reykjanesbæ og er í Fjölbrautaskólanum á Suðurnesjum. Hún fæddist með proximal focal defect of femur sem gerði það að verkum að lærbeinið á henni hætti að vaxa. Í gengum lífið leið Matthildi illa yfir því að vera eins og hún er, en myndi í dag aldrei vilja breyta því ef það væri hægt, því henni finnst þessi “galli” gera sig að manneskjunni sem hún er. Þrátt fyrir þetta elskar hún að dansa, syngja og hreyfa sig. Hún æfði dans í meira en 10 ár og fékk tækifæri til að keppa á heimsmeistaramóti. Hún elskar að hjálpa fólki sama hvernig það er, sérstaklega að finna sjálfstraust og sýna að maður getur gert allt sem maður ætlar sér.“

Emilíana. Mynd/Arnór Trausti

Emilíana Björk Harðardóttir

„Emilíana Björk varð 19 ára gömul í janúar á þessu ári. Hún á tvö systkini, eina eldri systur og einn yngri bróður. Hún býr í Grafarholtinu með foreldrum sínum og bróður. Emílíana útskrifaðist með diplómu úr augnháralenginarnámi frá snyrtistofunni Nærveru og starfar við það ásamt því að vera förðunarfræðingur og sölukona í Mac Cosmetics. Hún stefnir á að klára snyrtifræðinám við Fjölbrautarskólann í Breiðholti og langar í framtíðinni að stofna sína eigin snyrtistofu. Hún hefur mikinn áhuga á öllu sem tengist líkamsrækt og heilbrigðu líferni.“

Sasini. Mynd/Arnór Trausti

Sasini Inga Amarajeewa

„Sasini Inga er nýútskrifuð með stúdentspróf úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og stefnir á að hefja lögfræðinám við Háskólann í Reykjavík í haust.

Hún er upprunalega frá Sri Lanka, en er fædd og uppalin á Íslandi. Hún hefur mikla árstríðu fyrir hreyfingu og líkamsrækt.

Sasini sótti um í Ungfrú Ísland vegna þess að eldri systir hennar hefur alltaf hvatt hana til þess að taka þátt og hún hefur einnig gríðarlega mikinn áhuga á tísku og förðun.“

Kolfinna. Mynd/Arnór Trausti

Kolfinna Kristinsdóttir

„Kolfinna er fædd og uppalin á Kársnesinu í Kópavoginum. Hún er yngst fimm systkina þar sem hún á þrjár eldri systur og einn eldri bróður. Hún er fædd 1. janúar árið 2004 en var því miður aðeins fjórða barn ársins. Alla hennar skólagöngu fylgdi hún þó ávallt árganginum fyrir ofan sig og útskrifaðist úr Verzlunarskóla Íslands vorið 2022. Í dag er Kolfinna að læra næringarfræði í Háskóla Íslands og stefnir á að vinna innan heilbrigðisgeirans í framtíðinni. Hennar helstu áhugamál eru að ferðast og hreyfa sig, en hún á erfitt með að sitja kyrr og hafa ekkert fyrir stafni og því fátt annað skemmtilegra sem hún getur hugsað sér að gera.“

María Lovísa. Mynd/Arnór Trausti

María Lovísa Möller

„María Lovísa er 19 ára gömul. Hún er fædd og uppalin í Keflavík þar sem hún á stóra og ástríka fjölskyldu. Hún hefur unnið ýmis þjónustustörf gegnum árin og hefur ótrúlega gaman af því að vera í kringum fólk og líður best í skemmtilegum aðstæðum. Helstu áhugamál hennar eru að læra nýja hluti, ferðast, skoða nýja staði og kynnast nýju fólki. Í framtíðinni langar Maríu Lovísu að geta ferðast mikið og skoðað heiminn.“

Emilía Þóra. Mynd/Arnór Trausti

Emilía Þóra Ólafsdóttir

„Emilía Þóra er fædd í febrúar árið 2006, og er því 18 ára gömul. Alveg síðan hún man eftir sér hefur hún verið ákveðin, jákvæð og virk í félagslífinu. Hún er uppalin í Grindavík en býr núna á Álftarnesi. Hún er að byrja sitt þriðja og síðasta ár í Verzlunarskóla Íslands á nýsköpunar- og listabraut. Emilíu hefur alltaf dreymt um að skara fram úr sem leik- og söngkona og stefnir á að vinna við það í framtíðinni. Hún hefur mikinn áhuga á samfélaginu og elskar að læra eitthvað nýtt.  Hennar helsta markmið í lífinu er að mynda heilbrigð sambönd og vera fyrirmynd.“

Sóldís Vala. Mynd/Arnór Trausti

Sóldís Vala Ívarsdóttir

„Sóldís Vala er 18 ára gömul og er búin með annað árið í menntaskóla. Hún stefnir á að læra flugmanninn að lokinni menntaskólagöngu. Sóldís hefur mjög fjölbreytt áhugamál en hennar aðaláhugamál er hreyfing og heilsutengd málefni. Hún æfði fimleika í tíu ár,frá tveggja ára aldri, og færði sig svo í fótbolta. Hún hefur einnig mikinn áhuga á tísku og förðun, sem hefur þróast frá æsku. Sóldís er sjálfstæð og metnaðarfull og mjög opin fyrir að auka styrkleika sína á ólíkum sviðum og er ófeimin við að fara út fyrir þægindarammann.“

Misty. Mynd/Arnór Trausti

Kolfinna Mist Austfjörð

„Kolfinna Mist er 27 ára og er fædd og uppalin að hluta til á Akureyri, en fjölskyldan hennar er frá Akureyri og Húsavík. Hún er mikill dýravinur og á í augnablikinu tvær kanínur, tvo hamstra, og hest. Velferð dýra er henni mikilvæg og er hún sjálfboðaliði hjá Villikanínum, en býr einnig til efni um rétta umhirðu gæludýra á samfélagsmiðla. Kolfinna á dýrunum sínum mikið að þakka því þau hjálpuðu henni að ná sér eftir andleg veikindi og þau gera það enn alla daga. Helstu áhugamál hennar fyrir utan dýrin eru að lesa, hekla, og horfa á hryllingsmyndir.“

Alexandra Rún. Mynd/Arnór Trausti

Alexandra Rún Landmark

„Alexandra er starfandi hjá kísilmálmsteypu Elkem. Alexandra hefur búið á mismunandi stöðum víða um heiminn og var í fjögur ár í sjálfboðaliðastarfi fyrir dýrabjörgunarsamtök á meðan hún bjó í Púertó Ríkó, en samtökin hafa bjargað 500.000 flækingshundum. Alexandra hefur einnig reynslu af fyrirsætustörfum og stefnir á að verða frumkvöðull eins og móðir hennar. Hún hefur selt og framleitt kóralrifsörugga sólarvörn sem er laus við kemískt efni. Sem möguleg Ungfrú Ísland vonast hún til að vinna með samtökum sem vekja athygli á fórnarlömbum kynferðisafbrotamanna.“

Guðrún. Mynd/Arnór Trausti

Guðrún Sigurbjörnsdóttir

„Guðrún Sigurbjörnsdóttir er móðir og starfar hjá Play. Samhliða því rekur hún sitt eigið fyrirtæki. Guðrún er með BA í uppeldis- og menntunarfræði og master í mannauðsstjórnun. Í frítíma finnst henni mikivægt að eyða tíma sínum með fjölskyldu og sinna áhugamálum. Guðrún er einnig einkaþjálfari og brennur fyrir því að hjálpa öðrum með andlega og líkamlega heilsu. Hún hefur áður tekið þátt í fegurðarsamkeppnum. Guðrún lítur á þær sem tækifæri til að gefa af sér og vekja athygli á mikilvægum málefnum.“

Sigrún May. Mynd/Arnór Trausti

Sigrún May Sigurjónsdóttir

„Sigrún May, alltaf kölluð May, er fædd á Íslandi, var ættleidd 6 ára gömul, en er af Tælenskum uppruna. Hún stundar nám í fatahönnun við Fjöbrautarskólann í Garðabæ og er þar á sínu lokaári. May hefur mikinn áhuga á tísku og fatahönnun. Annað áhugamál hennar er fótbolti, en hún hefur æft fótbolta í 15 ár og spilar með meistaraflokki ÍR. Hún er líka áhrifavaldur, starfar við að gera auglýsingar á samfélagsmiðlum, aðallega TikTok, fyrir fjölmörg ólík fyrirtæki. May segist vera mikil prinsessa í sér, og fór ekki út úr húsi þegar hún var yngri nema fá að klæðast kjól. Það er ein af ástæðunum af hverju May langar að taka þátt í Ungfrú Ísland, að geta fengið að prófa allskonar kjóla. Hún er mjög spennt fyrir ferlinu, að kynnast nýju fólki og læra meira um sjálfa sig.“

Kolbrún Bjarkey. Mynd/Arnór Trausti

Kolbrún Bjarkey Matthíasdóttir

„Kolbrún Bjarkey er 20 ára, fædd í Reykjavík en uppalin á Akureyri. Hún er að klára stúdent í fjarnámi og stefnir svo á læknisfræði og framhaldsnám í taugaskurðlækningum. Hún starfar á Hlíð, elliheimilinu á Akureyri og hefur brennandi áhuga á umönnun. Kolbrún segir konurnar í kringum sínu lífi hafa verið miklar fyrirmyndir gegnum ævina og hún vonast til þess að geta sjálf verið einhverskonar fyrirmynd fyrir aðrar ungar stelpur.“

Stella Karen. Mynd/Arnór Trausti

Stella Karen Kristjánsdóttir

„Stella Karen er 23 ára gömul og er uppalin í Seljahverfi í Breiðholtinu en er nú búsett í Mosfellsbæ. Hún neytir hvorki áfengis né tóbaks, æfði fótbolta með yngri flokkum ÍR en skipti yfir í borðtennis fjórtán ára. Hún æfir og keppir með meistaraflokki Víkings og landsliðinu og hefur unnið til Íslandsmeistaratitla í einstaklings- og liðakeppnum. Árið 2021 útskrifaðist Stella sem stúdent af málabraut úr Menntaskólanum við Hamrahlíð og hefur síðan þá unnið á Joe & The Juice og sem laugarvörður á sumrin í Sundlaug Kópavogs. Hún stefnir á háskólanám í náinni framtíð.“

Sunna Líf. Mynd/Arnór Trausti

Sunna Líf Guðmundsdóttir

„Sunna Líf býr í Borgarnesi ásamt syni sínum, sem er fjögurra ára kærleiksbolti. Hún stundar nám við Háskóla Íslands samhliða vinnu.

Sunnu líður best þegar hún er með eitthvað fyrir stafni, hvort sem það er nám, vinna eða að ná settu markmiði en henni finnst einnig gott að hlusta á góða bók og slaka á heima. Hún nýtur þess að fara í fjallgöngur, ferðast og njóta þess að vera til, hitta fjölskyldu og vini og gera eitthvað nýtt.

Sunna er virkilega spennt fyrir sumrinu og þakklát fyrir að fá að taka þátt í Ungfrú Ísland og kynnast hinum glæsilegu keppendunum og því frábæra teymi sem leiðir þær áfram.

Með þátttöku sinni í Ungfrú Ísland vill Sunna leggja áherslu á mikilvægi þess að trúa á sjálfan sig, sjálfstraust og sjálfsrækt, því hún trúir því að hver og einn geti gert allt sem hann vill ef hann bara vinnur að því.“

Harpa Rós. Mynd/Arnór Trausti

Harpa Rós Jónsdóttir

„Harpa er uppalin í sveit í Grímsnesinu og er elst fjögurra systkina. Hún starfar á leikskóla, og er einnig sjálfboðaliði hjá bæði Rauða krossinum og Villiköttum. Harpa hefur mikinn áhuga á heilsu, bæði líkamlegri og andlegri, og er að læra einkaþjálfarann. Hún stefnir svo á enn frekari menntun í haust og ætlar í blaðamennskuna með því markmiði að deila mikilvægum málefnum með heiminum. Sem keppandi í Ungfrú Ísland langar Hörpu að halda áfram að opna fyrir samtalið um geðheilsu og efla sjálfsvígsforvarnir. Auk þess vill hún sýna gott fordæmi og hvetja aðra til að fylgja því sem þessi keppni snýst um.“

Erika Líf. Mynd/Arnór Trausti

Erika Líf Káradóttir

„Erika Líf er 19 ára gömul og hefur alla tíð búið í Kópavogi ásamt fjölskyldu sinni. Hún útskrifast úr Verzlunarskóla Íslands í sumar eftir þrjú frábær ár og stefnir á að fara í tannsmíði eða viðskiptafræði í framtíðinni. Erika hefur alltaf haft gaman af íþróttum, hún var í fimleikum í 11 ár og æfði einnig fótbolta í nokkur ár. Erika er lífsglöð og jákvæð, hefur ánægju af því að kynnast nýju fólki og að geta hjálpað þeim sem þess þurfa.“

Dísa. Mynd/Arnór Trausti

Dísa Dungal

„Dísa er fædd og uppalin á Íslandi en elskar að ferðast. Hennar uppáhaldsstaðir eru allir í mið-Ameríku; Miami, Turks and Caicos og Costa Rica en hana dreymir um að ferðast til Asíu. Hún er með meistaragráðu í íþrótta-og heilsufræði og starfaði sem íþróttafræðingur í sex ár áður en hún hryggbrotnaði árið 2022. Hún er núna að vinna í því að styrkja sig á ný og finna sér nýjan farveg. Tónlist hefur alltaf verið áhugamál hjá Dísu, en hún er fyrst núna að hafa tíma til að sinna þeirri ástríðu. Hún er full tilhlökkunar að taka þátt í Ungfrú Ísland í ár, og segir það eitt af sínum aðaláhugamálum.“

Valeríja. Mynd/Arnór Trausti

Valeríja Rjabchuk

„Valeríja er 26 ára móðir, eiginkona og hársnyrtir. Hún er af Austur-Evrópskum uppruna en ólst upp á Íslandi.

Hún er mikill fagurkeri á orðsins list og fagra muni. Uppáhaldsbókin hennar er Eyðimerkurblómið.

Valeríja elskar að ferðast, elda góðan mat og njóta í faðmi fjölskyldu og vina. Hennar ástríða liggur í starfi hennar sem hársnyrtir og hefur hún unun af að kenna og leiðbeina öðrum sem eru að læra fagið. Góðgerðarmál hafa verið Valeríju sérstaklega hjartfólgin undanfarin ár í ljósi þeirra erfiðleika og stríðsreksturs sem heimsbyggðin stendur nú frammi fyrir. Með ævintýragjarnt, listrænt og jákvætt eðli langar hana að gera heiminn að betri stað.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Harry og Meghan fá á baukinn fyrir nýja ,,áhugamálið“ í Bandaríkjunum

Harry og Meghan fá á baukinn fyrir nýja ,,áhugamálið“ í Bandaríkjunum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Tinder ekki að gefa? – Kannski Bænder sé málið

Tinder ekki að gefa? – Kannski Bænder sé málið
Fókus
Fyrir 4 dögum

Haukur Már skipti út frönskum og fékk kvörtun nakinn í World Class – „Ég hef svona semi fengið morðhótanir“

Haukur Már skipti út frönskum og fékk kvörtun nakinn í World Class – „Ég hef svona semi fengið morðhótanir“