Það er vandlifað á þessum síðustu og verstu tímum samfélagsmiðlana og því fékk lögreglumaðurinn Sean Herman að kynnast á dögunum þegar hann í sakleysi sínu ætlaði að taka þátt í framleiðslu á klámmyndbandi fyrir Onlyfans-stjörnu í heimabæ sínum, Nashville í Tennessee-fylki Bandaríkjanna. New York Post fjallar um málið.
Gekk myndbandið út á það að lögreglumaður í fullum skrúða stöðvaði Onlyfans-stjörnuma Jordin undir stýri og hugðist sekta hana. Til þess að komast hjá sektargreiðslunni beraði Jordin svo brjóst sín og leyfði lögreglumanninum að þukla á þeim.
Allt gekk eins og í sögu í myndbandinu til að byrja með og vann Herman leiksigur sem pervertíski lögreglumaðurinn Johnson. Ekkert sást í andlit hans né nokkuð sem gat auðkennt hann.
En ógæfan dundi yfir þegar Herman, eða öllu heldur Johnson, beygði sig örlítið fram til að nálgast brjóst Jordin. Þá sást glitta í lögreglumerki hans og það nægði glöggum netverjum til þess að finna út hans raunverulega nafn.
Hart var tekið á gjörningnum og Herman var sagður hafa niðurlægt lögregluembættið í Nashville og samstarfsfólk sitt með þátttöku sinni í myndbandinu og var hann í kjölfarið rekinn með skít og skömm,
Jordin kom mótleikara sínum til varnar í umræðum á samfélagsmiðlinum Reddit og sagði brottreksturinn fáránlegan. Þarna hefðu tveir fullorðnir einstaklingar tekið þátt í gjörningi með fúsum og frjálsum vilja.