Khalifa er eigandi fyrirtækisins Sheytan sem selur skartgripi og aðra fylgihluti. Hún var að auglýsa vörur frá merkinu þegar einn aðdáandi skrifaði við mynd af henni: „Af hverju fæddist ég ekki með þennan líkama? Guð minn góður, hvað kostaði þetta þig?“
„Elskan, ég keypti brjóstin mín og ég er á Ozempic. Ég get sagt þér nákvæmlega hvað þetta kostaði,“ svaraði Khalifa.
Netverjar fögnuðu hreinskilni hennar en það eru ekki margir frægir einstaklingar sem hafa gengist við notkun lyfsins.
Baby I bought my tits and I’m on ozempic, I can tell you exactly what it costs😂 https://t.co/SnkPE4HJvv
— Mia K. (@miakhalifa) April 21, 2024