Fókus

Þetta geturðu keypt í sjoppunni á Þjóðhátíð í ár

Mynd
Frá Herjólfsdal á Þjóðhátíð í Eyjum 2015. Mynd: Vilhelm Gunnarsson

Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja síðastliðinn mánudag voru teknar fyrir umsóknir um nauðsynleg leyfi til að mögulegt sé að halda hina árlegu Þjóðhátíð um verslunarmannahelgina.  Í fundargerð fundarins á vef Vestmannaeyjabæjar eru birt ýmis gögn sem fylgdu umsóknunum og þar á meðal er ítarlegur listi frá Þjóðhátíðarnefnd yfir hvernig skipulagi hátíðarinnar verður háttað. Á listanum er m.a. tíundað hvað verður selt í sjoppunni sem verður komið upp á hátíðarsvæðinu. Það sem í boði verður er eftirfarandi:

Popp – framleitt á staðnum í þar til gerðum poppvélum
Kandífloss í lokuðum umbúðum (plastdollum)
Möffins í lokuðum umbúðum
Smákökur í lokuðum umbúðum
Frosnar vöfflur hitaðar í brauðrist með Nutella og rjóma
Uppáhellt kaffi
Gos í ½ líters umbúðum, plast
Ávaxtasafi

Sælgæti, súkkulaði, sleikjó, snakk ofl. Í lokuðum umbúðum
Gos í ½ líters umbúðum. Plast
Gos í dósum. Ál
Orkudrykkir. Ál og plast.
Tóbak
Kveikjarae
Eldspýtur
Nikótínpúðar
Einnota vape rafrettur

Fleiri sjoppum og sölutjöldum verður komið upp.

Í sérstakri skransjoppu verða seld:

Brekkustólar
Línusprey
Hársprey
Hárkollur og búningar
Leikfangabyssur – Hvellhettu.
Leikföng

Í pizzusjoppu verða seld:

Frosnar pizzur, hitaðar í pizzuofnum
Pylsur
Gos í dós. Ál.
Súkkulaði
Bjór í ½ líters umbúðum. Ál

Í veitingatjaldi verða til sölu:

Hamborgarar
Samlokur
Pizzur
Ostastangir
Kjúklingabitar
Franskar
Humarsúpa
Lundi
Gos í dós. Ál.
Uppáhelt kaffi
Bjór í ½ líters umbúðum. Ál

Loks verður komið upp litlu og stóru bjórtjaldi og þar verða til sölu:

Bjór í ½ líters umbúðum. Ál.
Skot í litlum flöskum. Plast
Síder, ávaxtavín og blöndur í litlum dósum. Ál.
Léttvín í litlum flöskum. Plast
Orkudrykkir. Ál.
Bjór á dælu. Plast glös