Embla ræðir um áhrifavaldabransann í London, þar sem hún er búsett, upphafið á ferlinum, hvernig venjulegur vinnudagur lýsir sér, ráð fyrir aðra sem vilja fylgja í hennar fótspor og svo margt fleira. Horfðu á brot úr þættinum hér að neðan eða smelltu hér til að horfa á hann í heild sinni.
Það er hægt að hlusta á Spotify, Apple Podcasts og hlaðvarpsþjónustu Google.
Aðspurð hvaða ráð hún hefur fyrir þá áhrifavalda sem fara ört stækkandi og vilja fylgja í hennar fótspor og rækta ferilinn segir Embla:
„Kannski bara að vera var um sig og passa að hugsa um sjálfan sig fyrst og fremst […] Það er geggjað að vera með fólk með sér í liði sem hjálpar manni, en þú ert eina manneskjan sem mun alltaf virkilega setja sjálfa þig í fyrsta sæti, þetta er þinn ferill. Þannig maður þarf að standa með sjálfum sér stundum.“
Embla er nú á skrá hjá umboðsskrifstofunni W Talent Management, en hún segir fólk ekki endilega þurfa að vera á skrá hjá stórri skrifstofu, heldur sé það umboðsmaðurinn sjálfur sem skiptir máli og hvernig áhrifavaldurinn og hann vinna saman.
Mörg myndbanda Emblu eru gríðarlega vinsæl, eða hafa orðið „viral“ eins og það er kallað í netheimum. Sum myndbanda hennar hafa fengið tugi milljónir í áhorf, en hvað er það sem gerir þau svona vinsæl miðað við annað efni?
„Það er svo erfitt að segja, því mjög oft þá eru myndböndin sem fara mest viral eitthvað sem maður er alls ekki að búast við að fari viral. En ég myndi segja að aðalmálið sé að ná að grípa athygli áhorfandans strax eða mjög fljótt. Og vera með eitthvað, hvort sem það er eitthvað sjónrænt sem grípur athygli eða bara hvað sem er, en mér finnst það oftast virka. En það getur verið svo alls konar, það getur oft farið viral þegar maður fylgir trendi, eða koma með eitthvað frumlegt sem er spennandi. En númer 1,2,3 er að grípa athygli sem fyrst [því eins og þeir sem skoða TikTok vita þá skrollar maður svo hratt í gegnum efnið,]“ segir hún.
Embla segir að stundum komi það henni á óvart hvaða myndbönd slá í gegn. Ef við tökum nýlegt dæmi þá lagði hún mikla vinnu í að endurgera fræga förðun eftir förðunarfræðinginn og snyrtivörumógulinn Pat McGrath. Myndbandið þar sem hún sýnir förðunina fékk 165 þúsund áhorfa, en síðan birti hún annað myndband – sem tók mjög stuttan tíma að taka upp- af sér fjarlægja farðann og það fékk 28 milljónir áhorfa.
Sjáðu þau bæði hér að neðan.
@emblawigum recreating the @Pat McGrath Labs porcelain skin look for @Maison Margiela ♬ Solas X Interstellar – Gabriel Albuquerqüe
@emblawigumpov: weirdest makeup removal ever♬ original sound – Embla Wigum
Fylgstu með Emblu á Instagram, TikTok og YouTube.
Horfðu á þáttinn með Emblu í heild sinni hér eða hlustaðu á Spotify.