Sjá einnig: Lét banna áhrifavald í ræktinni eftir að hún tók upp þetta myndband
Á dögunum gagnrýndi hann konu sem var að taka upp efni fyrir OnlyFans í ræktinni. Hún var að teygja og maður gekk í kringum hana og tók hana upp.
Sjáðu umrætt myndband og gagnrýni Joey hér að neðan. Prófaðu að endurhlaða síðuna ef þú sérð ekki færsluna.
View this post on Instagram
„Þjálfari sem ég æfi stundum með sendi mér þetta myndband,“ segir Joey Swoll.
„Hann sagði að hún hafi komið inn undir fölsku nafni til að taka upp myndband af sér teygja. Öllum þjálfurunum og viðskiptavinunum þarna inni í salnum leið mjög óþægilega. Þannig ég sendi eiganda líkamsræktarstöðvarinnar myndbandið, við þekkjumst vel.“
Eigandinn var meðvitaður um málið en hann þurfti að fara út af miðjum fundi til að reka hana út.
Umrædd OnlyFans-stjarna heitir Karli og virtist ekki kippa sér upp við þetta. Hún birti færsluna hér að neðan í kjölfarið.
Joey segir að það sé ekkert að því að teygja í ræktinni en það sé augljóst hvað hún hafi verið að gera. Hann bendir á Instagram-síðu hennar, meðal annars myndbandið hér að neðan, en hún deilir reglulega djörfu myndefni af sér í ræktinni til að auglýsa OnlyFans.
„Ég hef ekkert á móti OnlyFans en svona efni á ekki heima í ræktinni,“ segir hann.
View this post on Instagram