fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fókus

Hlín Leifsdóttir opnaði listahátíð í Aþenu – Syngur sig inn í hjörtu Grikkja

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 28. mars 2024 15:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ljóðskáldið og söngkonan Hlín Leifsdóttir hefur undanfarin ár gert það gott í Grikklandi. Er þess skemmst að minnast er hún söng á afmælishátíð UNESCO til heiðurs söngkonunni Maria Callas.

Sjá einnig: Hlín söng á stórtónleikum til heiðurs Mariu Callas

Að undanförnu hafa staðið yfir hátíðahöld í Grikklandi í tengslum við 200 ára afmæli sjálfstæðis Grikkja, en 25. mars er þjóðhátíðardagur Grikkja.  Árið 2022 var 200 ára afmælis sjálfstæðisyfirlýsingarinnar minnst, en sjálfstæðisferlið tók mörg ár og miklar blóðsúthellingar. Einn af þekktustu baráttumönnum fyrir sjálfstæði Grikkja er enska skáldið Byron lávarður, en Byron barðist fyrir Grikki og lét lífið í Grikklandi árið 1824.

Nú minnast Grikkir 200 ára ártíðar Byrons lávarðar og leiðtogans Markos Botsaris, sem lést í bardaga við Tyrki um svipað leyti. Listahátið með fjölmörgum listamönnum frá ýmsum héruðum Grikklands hefur staðið yfir undanfarið en Hlín opnaði hátíðina með einsöng, er hún flutti lag sem var samið til heiðurs Byron. Lagið er eftir gríska tónskáldið Panagiotis Karousos við gríska þýðingu ástarljóðsins Maid of Athens, sem Byron samdi til grískrar unnustu sinnar og grísku þjóðarinnar.

Hlín var eini erlendi listamaðurinn sem kom fram á hátíðinni.

Hlín hefur að undanförnu sungið einsöng opinberlega í Grikklandi, við mjög góðar undirtektir. Hún hefur sungið við ýmis tækifæri, meðal annars fyrir UNESCO í tengslum við alþjóða kvennadaginn, 8. mars.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Háklassa vændiskona rukkar 1,4 milljónir fyrir endaþarmsmök – „Ég held að karlmenn njóti þess að sjá konur í óþægilegum aðstæðum“

Háklassa vændiskona rukkar 1,4 milljónir fyrir endaþarmsmök – „Ég held að karlmenn njóti þess að sjá konur í óþægilegum aðstæðum“
Fókus
Í gær

Ingi skorar á Íslendinga að finna sig – Klukkarinn fær 100 þúsund í fundarlaun

Ingi skorar á Íslendinga að finna sig – Klukkarinn fær 100 þúsund í fundarlaun
Fókus
Fyrir 2 dögum

Magnús Hlynur hrekkti eiginkonuna og þurfti að sofa á sófanum í nótt

Magnús Hlynur hrekkti eiginkonuna og þurfti að sofa á sófanum í nótt
Fókus
Fyrir 2 dögum

Kjartan er ekki neyddur til að vera í opnu sambandi – „Myndi ekki vilja fara til baka“

Kjartan er ekki neyddur til að vera í opnu sambandi – „Myndi ekki vilja fara til baka“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Prinsinn orðinn 11 ára – Mamman myndar afmælisdrenginn

Prinsinn orðinn 11 ára – Mamman myndar afmælisdrenginn