Von er á sjötta barni hjónanna Haylee og Shawn Ladner í heiminn í júlí, 17 mánuðum eftir að fimmburarnir þeirra fæddust í febrúar 2023.
Foreldrarnir ætluðu sér ekki að eignast fleiri börn, en í viðtali við People segir Haylee að hún gæti hafa gleymt að taka pilluna í desember þegar þrjú barnanna voru lögð inn á sjúkrahús með lungnabólgu. „Við vorum ekki að reyna að eignast fleiri börn og ég var á getnaðarvörn,“ segir Haylee. „Ég var viss um að það yrði neikvætt,“ segir Haylee og vísar til þungunarprófsins sem hún tók skömmu síðar.
Von er á dóttur, en fyrir eru systurnar fjórar Adalyn Elizabeth, Everleigh Rose, Malley Kate, Magnolia Mae og bróðirinn Jake Easton.
Vegna veikinda barnanna í desember tók það hjónin smá tíma að meðtaka það fyrir alvöru að von væri á einu barni í viðbót. „Fyrir það fyrsta var ég virkilega, virkilega þreytt, en ég gerði bara ráð fyrir að það væri vegna þess að ég á fimm börn! Auðvitað er ég þreytt! Og skrifaði það á barnafjöldann, en ekki þungun.“
Þegar hún sagði eiginmanninum frá jákvæðu þungunarprófi sínu var hann líka í afneitun. „Hann klæddi sig í jakkann og ég var bara: „Hvert ertu að fara?“ „Út í búð að kaupa fleiri þungunarpróf,“ segir Haylee og hlær. „Auðvitað voru þau jákvæð líka.“
Hjónin voru þó fljót að ná sér af sjokkinu sem þau fengu í fyrstu og bíða nú spennt eftir dótturinni. „Þetta var pínu ógnvekjandi í fyrstu, vegna þess að þau verða svo nálægt í aldri, en ef ég get séð um fimm, þá get ég séð um sex!“