Bandaríska klámstjarnan Kagney Linn Karter er látin, aðeins 36 ára að aldri.
Hún svipti sig lífi og fannst heima hjá sér í Cleveland á fimmtudaginn.
Fjöldi miðla vestanhafs greina frá andláti hennar en Kagney var vel þekkt í klámbransanum og naut mikillar velgengni í starfi.
Vinkonur Kagney, Rachel og Megan, hafa sett upp GoFundMe síðu til að hjálpa móður hennar, Tinu, með jarðarfarakostnað.
Þær lýsa Kagney sem þúsundþjalasmið og sögðu að hún hafði glímt við andleg veikindi um tíma.
„En meira að segja á dimmustu dögum hennar, mætti hún samt í stúdíóið, alltaf tilbúin að læra, leggja sig fram og betrumbæta sig,“ segja þær um vinkonu sína.
„Hún var einmana en var alltaf til staðar fyrir vini sína og samfélagið sem elskaði hana. Hún barðist eins mikið og hún gat, með eins miklum styrk og hún gat.“
View this post on Instagram
Kagney elskaði pole fitness og rak dansstúdíóið Alchemy Pole Fitness.
„Kagney var örlát, eins kaldur og heimurinn gat verið þá lýsti Kagney hann upp.“
Fólk minnist Kagney og segja margir að hún hafi yfirgefið þennan heim alltof snemma.
Kagney birti síðustu myndina á Instagram þann 10. febrúar síðastliðinn, fimm dögum áður en hún lést.
Það var mynd af henni á ströndinni og hún skrifaði með: „Hæ, frá Flórída.“
View this post on Instagram
Í þessari frétt er fjallað um þunglyndi og sjálfsvíg. Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.