TMZ greinir frá því að leikarinn, sem sló í gegn í þáttunum Outer Banks sem sýndir eru á Netflix, hafi slegið konu í andlitið sem var þar við störf. Þá hafi hann ýtt í andlit annarrar konu sem var við vinnu á sjúkrahúsinu.
Sú brást við með því að slá leikarann í höfuðið með einhvers konar álbakka.
Öryggisverðir voru kallaðir á vettvang og yfirbuguðu þeir hinn 28 ára gamla leikara og handjárnuðu hann við sjúkrarúm uns lögregla kom á vettvang. Er leikarinn svo sagður hafa veist að þriðja starfsmanninum.
North birti yfirlýsingu á Instagram-síðu sinni í vikunni þar sem hann lýsti iðrun sinni. Sagðist hann hafa fengið slæmt kvíðakast og muni ekki mikið eftir atvikinu.
„Mér líður illa yfir þessu sem gerðist í Las Vegas. Vinur minn ók mér á sjúkrahús þar sem ég hélt að ég væri að fá hjartaáfall. Það voru gerðar allskonar prufur, meðal annars blóðprufur, og sýndu þær að ég var ekki undir áhrifum áfengis eða lyfja. Þetta var kvíðakast sem ég var að upplifa.“
„Ég man ekki mikið eftir þessum atburðum. Ég tek það samt fram að ég ber mikla virðingu fyrir störfum heilbrigðisstarfsfólks og starfsfólks sjúkrahúsa. Ég hef barist við kvíða af og til í mörg ár og þetta var versta kastið til þessa,“ sagði hann.
Ekki liggur fyrir hvort atvikið hafi áhrif á tökur á fjórðu þáttaröð Outer Banks sem nú standa yfir. North fer með nokkuð veigamikið hlutverk í þáttunum sem notið hafa talsverðra vinsælda meðal yngra fólks.