fbpx
Fimmtudagur 25.júlí 2024
Fókus

Eiginkona Kanye West heldur áfram að hneyksla – Nær nakin í Super Bowl partýi

Fókus
Þriðjudaginn 13. febrúar 2024 07:43

Skjáskot/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástralski arkitektinn Bianca Censori, sem er hvað þekktust fyrir að vera eiginkona rapparans Kanye West, heldur áfram að hneyksla.

Fyrir viku síðan setti hún internetið á hliðina þegar myndir af henni ganga um í gegnsæjum regnjakka, í engu undir, fóru á dreifingu.

Sjá einnig: Eiginkona Kanye West kviknakin undir gegnsæjum regnjakka

Hún var úti á meðal almennings, á leið í upptökuver eiginmanns hennar.

Þetta var hvorki í fyrsta né síðasta skipti sem fataval hennar verður umdeilt. Á aðfaranótt mánudags var Ofurskálin og eftir leikinn mættu stjörnurnar í partý hingað og þangað.

Kanye West hélt eitt slíkt partý og mætti að sjálfsögðu eiginkona hans, og það ætti ekki að koma fólki á óvart að fataval hennar hafi verið djarft.

Hún var í einhvers konar samfellu, ef svo má kalla, og engu öðru.

Bianca Censori
Skjáskot/Instagram

Kanye West birti myndband af henni í partýinu á Instagram.

Prófaðu að endurhlaða síðuna ef þú sérð ekki færsluna hér að neðan.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Ye (@kanyewest)

Sjá einnig: Kanye birti umdeildar djarfar myndir af eiginkonu sinni

Netverjar hafa lýst yfir áhyggjum af Biöncu en hegðun hjónanna virðist sífellt furðulegri og furðulegri. Í byrjun árs fór Kanye að birta myndir af eiginkonu sinni sem hafa verið mjög umdeildar. Hann endaði með að eyða öllu út af Instagram eftir að hann birti síðustu myndina af Biöncu en hefur nú birt nokkrar nýjar færslur, en engar myndir af henni.

Eftir að myndirnar af Biöncu í regnjakkanum vöktu heimsathygli greindu miðlar vestanhafs frá því að foreldrar Biöncu væru í uppnámi og væru hræddir um að Kanye hafi fullkomna stjórn á henni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Veðrið á Íslandi vekur mikla athygli – Margir væru til í að skipta við okkur

Veðrið á Íslandi vekur mikla athygli – Margir væru til í að skipta við okkur
Fókus
Í gær

Forsetafjölskyldurnar hittust á Bessastöðum

Forsetafjölskyldurnar hittust á Bessastöðum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þekkir þú brúðhjónin á þessum myndum? – Ljósmyndara leitað

Þekkir þú brúðhjónin á þessum myndum? – Ljósmyndara leitað
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þjófstartaði afmælinu með Bridgerton-þema – Eiginmaðurinn hvergi sjáanlegur

Þjófstartaði afmælinu með Bridgerton-þema – Eiginmaðurinn hvergi sjáanlegur
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Var komin á þann stað að mér leið eins og ég væri að panta mér vanlíðan á Amazon“

„Var komin á þann stað að mér leið eins og ég væri að panta mér vanlíðan á Amazon“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sex hversdagslegar kynlífsupplifanir sem karlmenn þrá en þora ekki að biðja um

Sex hversdagslegar kynlífsupplifanir sem karlmenn þrá en þora ekki að biðja um
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ferill Katy Perry riðar til falls eftir heimskulegar ákvarðanir

Ferill Katy Perry riðar til falls eftir heimskulegar ákvarðanir