Horfðu á þáttinn í heild sinni hér.
Einnig er hægt að hlusta á Apple Podcasts og hlaðvarpsþjónustu Google.
Rakel Hlynsdóttir segir frá þeirri stóru, erfiðu en frelsandi ákvörðun að hætta að drekka. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem hún tók slíka ákvörðun. „Þegar ég var tvítug hætti ég alveg að drekka í fjögur ár. Ég var bara krakki sem drakk allt of mikið, fór í „blackout“ og áfengi var að valda mér mikilli vanlíðan. Ég tók mjög góða ákvörðun þegar ég var tvítug þegar ég spurði sjálfa mig hvort þetta væri manneskjan sem ég vildi vera,“ segir hún.
„Svo liðu árin og ég veit ekki, maður fer að sannfæra sig. „Þetta var svo slæmt tímabil þarna, ég get alveg drukkið.“ Ég byrjaði að drekka aftur 2019 og hef núna verið að „prófa“ mig áfram í drykkjunni. Mjög skrýtið að segja þetta því drykkjan á mjög illa við mig.“
Fyrir nokkrum mánuðum ákvað Rakel að leggja flöskuna á hilluna og finnur strax mikinn mun.
„Það er svo mikið frelsi því þetta var að valda mér svo mikilli vanlíðan. Ég hélt í alvöru að þegar fólk væri að drekka væri mjög eðlilegt að líða þannig daginn eftir að manni langaði að deyja. Ég hélt það væri bara áfengið að tala. Það er eins og þynnkan mín verði þrefalt verri en hjá öðrum, ekki líkamlega heldur í hausnum mínum. Þar kemur líklegast ADHD-ið inn. Það er í raun og veru hættulegt fyrir mig að drekka,“ segir Rakel.
„Ég hugsaði ég hef stjórn á þessu, ég get hætt að drekka. En ég þarf að hafa alveg fyrir því. Ég hef þurft að leita mér hjálpar, fara í gegnum sporin og allt þetta. Skoða mig. Ég er alltaf að fara að græða á þessu ferli. Ég finn strax bara [hvað þetta er mikill léttir].“
Rakel ræðir nánar um hvaða áhrif áfengi hafði á hana og ákvörðunina um að hætta í spilaranum hér að ofan. Brotið er hluti af nýjasta þætti af Fókus sem má horfa á í heild sinni hér. Einnig er hægt að hlusta á hann á Spotify, Apple Podcasts og öllum helstu hlaðvarpsveitum.