Þetta er mat leiðarahöfundar New York Post í dag en í leiðaranum er skrifað um eltihrelli sem hefur gert söngkonunni lífið leitt að undanförnu.
John Lennon var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í New York þann 8. desember 1980 af Mark David Chapman.
Maðurinn sem hefur gert Swift lífið leitt að undanförnu heitir David Crowe og var hann handtekinn um helgina þegar hann reyndi að komast inn til söngkonunnar.
Frá 25. nóvember síðastliðnum hefur verið tilkynnt um áreitni hans 30 sinnum. Virðist fátt stöðva manninn því hann sást aftur í gær við heimili hennar á Manhattan.
Leiðarahöfundur New York Post gagnrýnir ráðaleysi lögreglu og yfirvalda í málinu. Brot hans eru ekki talin nægjanlega alvarleg til að hann fari í fangelsi og veltir höfundur fyrir sér hvað þurfi að gerast svo gripið verði inn í.
„Þetta er eitthvað sem virðist koma aftur og aftur upp í borginni okkar. Þeir sem eru andlega veikir eru handteknir en þeir eru ekki settir í fangelsi eða í þar til gert úrræði,“ segir höfundur og bætir við að það sé ekki fyrr en eitthvað gerist, til dæmis einhver er myrtur, að eitthvað gerist.
„Er þessi borg búin að gleyma harmleiknum í kringum Mark David Chapman og John Lennon,“ spyr leiðarahöfundur.
„Viljum við að eitthvað hræðilegt gerist, að þrátt fyrir 30 viðvaranir gerði lögreglan ekkert? Verndum Taylor Swift. Verndum alla íbúa New York,“ segir leiðarahöfundur að lokum.