Miðlar greindu frá því síðastliðinn föstudag að Travis Barker og hljómsveit hans, Blink 182, hefðu frestað tónleikum sem vera áttu þá helgi vegna aðkallandi fjölskyldumála Barker.
Barker dreif sig heim til Bandaríkjanna og var með eiginkonu sinni, Kourtney Kardashian, á sjúkrahúsi, sem þau sáust yfirgefa á sunnudag og eins og sjá má á myndum sem teknar voru þá var Kourtney blessunarlega enn ófrísk, en hún gengur með fjórða barn sitt og fyrsta barn þeirra Barker.
Sjá einnig: Hjónin yfirgefa sjúkrahús – Frestaði tónleikum vegna aðkallandi fjölskyldumála
Kourtney greindi frá því í gær að bráðaaðgerð hefði þurft að gera á fóstrinu. Í færslu á Instagram segist hún alls ekki hafa verið undirbúin undir slíkt eftir að þrjár fyrri meðgöngur hafi verið án áfalla, en Kourtney var lögð inn á spítala á föstudag.
„Ég er að eilífu þakklát ótrúlegu læknateymi fyrir að bjarga lífi barnsins okkar. Ég er manninum mínum ævinlega þakklát sem yfirgaf tónleikaferðalag sitt til að vera með mér á spítalanum og sjá um mig, hann er kletturinn minn. Og mamma, takk fyrir að halda í hendina á mér í gegnum þetta allt,“ segir Kourtney.
„Eftir þrjár mjög auðveldar fyrri meðgöngur var ég ekki tilbúin fyrir bráða fósturaðgerð og óttann sem hún hafði í för með sér. Ég held að enginn sem hefur ekki gengið í gegnum svipaðar aðstæður geti ímyndað sér hvernig tilfinning það er.
Ég hef öðlast nýjan skilning og ber svo mikla virðingu fyrir mæðrum sem hafa þurft að berjast fyrir börnum sínum á meðgöngu. Lof sé Guði. Að ganga út af spítalanum með drenginn minn enn í maganum og öruggan er mikil blessun.“