Nágrannar Ruby Franke segjast loksins geta andað rólega eftir að hún var handtekin í síðustu viku. Hún og viðskiptafélagi hennar, Jodi Hildebrandt, voru handteknar eftir að sonur Ruby tókst að flýja heimili þeirra í Utah. Drengurinn var vannærður og með taulímband yfir ökkla og úlnliði. Hann var fluttur á sjúkrahús ásamt tíu ára dóttur Ruby, sem fannst einnig vannærð á heimilinu.
Sjá einnig: Mömmuáhrifavaldur handtekin eftir að „grindhoruðu“ barni tókst að flýja með límband og áverka á útlimum
Ruby, 41 árs, á sex börn með eiginmanni sínum Kevin Franke. Þau stofnuðu YouTube-rásina 8 Passengers árið 2015 og deildu kristilegu lífi sínu og harkalegum uppeldisaðferðum með áhorfendum. Ruby hefur lengi verið umdeild og hafa áhorfendur sakað hana um að beita börnin sín ofbeldi í mörg ár. Eftir handtökuna fóru gömul myndbönd Ruby aftur í dreifingu og hafa vakið mikinn óhug meðal netverja.
Sjá einnig: Gömul myndbönd alræmda mömmuáhrifavaldsins vekja óhug – Beitti börnin ofbeldi fyrir allra augum
Það voru greinilega ekki aðeins áhorfendur heldur einnig nágrannar Ruby sem höfðu áhyggjur af börnunum.
Fréttastofa NBC ræddi við nágranna Ruby. Hún sagði að hún hafi margoft reynt að tilkynna áhrifavaldinn til yfirvalda. Að hennar sögn fóru barnaverndaryfirvöld í Utah að heimili Ruby Franke í september 2022 til að kanna aðstæður, eftir tilkynningar nágrannans, en málið var látið falla niður þar sem enginn kom til dyra.
„Ég er svo reið því ég reyndi að gera eitthvað í þessu. Aðrir reyndu að gera eitthvað, en ekkert gerðist,“ sagði hún.
„Ef fólk vissi bara hversu mikill tími, og hversu mörg tár, fór í að tala við yfirvöld og barnavernd síðastliðið ár, ég vil að fólk átti sig á þessu. Ég vil að þessi börn viti það, því þau halda að þau hafi verið yfirgefin“
NBC ræddi við annan nágranna sem sagði að „allir héldu að [fjögur yngstu börnin] myndu yfirgefa húsið í líkpokum“ þegar lögreglan kom til að handtaka Ruby.
Fjögur yngstu börnin eru Abby, 16 ára, Julie, 14 ára, Russell, 12 ára, og Eve, 10 ára.
Tvö eldri börnin, Shari, 20 ára, og Chad, 18 ára, voru flutt að heiman.
Shari birti yfirlýsingu vegna handtöku móður sinnar á fimmtudaginn.
„Þetta var stór dagur. Við fjölskyldan erum ánægð með að réttlætið hafi náð fram að ganga. Við höfum reynt að segja lögreglu og barnavernd frá þessu í mörg ár og erum ánægð að það var loksins eitthvað gert í þessu.“