Opnunarviðburður FKA Framtíðar, sem er deild innan Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) fór fram fyrir viku síðan, fimmtudaginn 7. september. Á viðburðinn mættu hátt í 100 konur og skemmtu sér stórkostlega yfir dagskrá kvöldsins. Viðburðurinn var tengslakvöld þar sem félagskonur voru hvattar til að mæta með vinkonu með sér til að leyfa þeim að kynnast starfi félagins.
Stjórn FKA Framtíðar ásamt Röggu Nagla og Sýn konum. Frá vinstri, Maríanna Finnbogadóttir, Kristjana Thors Brynjólfsdóttir, Sjöfn Arna Karlsdóttir, Sólveig R Gunnarsdóttir, Árdís Ethel Hrafnsdóttir, Karlotta Halldórsdóttir, Sigríður Inga Svarfsdal Frá vinstri niðri: Kristín Friðgeirsdóttir, Sesselía Birgisdóttir, Ragga Nagli, Ester Sif Harðardóttir Mynd: Hulda Margrét
Viðburðurinn fór fram í húsakynnum Sýn að Suðurlandsbraut og tóku Sýn-konur virkilega vel á móti Framtíðarkonum með veglegum veitingum og frábærum kynningum. Þar tóku til máls þær Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri, Kristín Friðgeirsdóttir, fjármálastjóri, Kristjana Brynjólfsdóttir, þróunarstjóri sjónvarpslausna, og Eva Georgs, framleiðslustjóri og sögðu frá leik og starfi og nýjungum hjá Sýn.
Aðaldagskrárliður kvöldsins var síðan fyrirlestur frá Röggu Nagla, sálfræðingi og heilsu-áhrifavaldi, þar sem hún fór yfir hvernig við setjum okkur mörk, við frábærar undirtektir viðstaddra.
Ragga Nagli Mynd: Hulda Margrét
Á þessu starfsári er áhersla lögð á að styrkja konur á öllum sviðum, og þema vetrarins er “Sterkari þú”. Allir viðburðir starfsársins munu vinna með þemað, en stefnt er að fjölda fyrirlesara, námskeiða og fleiru skemmtilegu tengdu efninu.
Sigríður Inga Svarfsdal, markaðsstjóri YAY Mynd: Hulda MargrétMynd: Hulda MargrétSigríður Inga Svarfsdal, markaðsstjóri YAY Mynd: Hulda MargrétMynd: Hulda MargrétSólveig R Gunnarsdóttir, ráðgjafi hjá Sólveig Ehf., formaður FKA Framtíðar Mynd: Hulda MargrétSólveig R Gunnarsdóttir, ráðgjafi hjá Sólveig Ehf., formaður FKA Framtíðar Mynd: Hulda MargrétMynd: Hulda MargrétSigríður Inga Svarfsdal, markaðsstjóri YAY Mynd: Hulda MargrétEva Georgs framleiðslustjóri hjá Stöð 2 Mynd: Hulda MargrétMynd: Hulda MargrétMynd: Hulda MargrétMynd: Hulda MargrétMynd: Hulda MargrétMynd: Hulda MargrétMynd: Hulda MargrétMynd: Hulda MargrétSigríður Inga Svarfsdal, markaðsstjóri YAY Mynd: Hulda MargrétMynd: Hulda MargrétMynd: Hulda MargrétMynd: Hulda Margrét