Kanye West og eiginkona hans Bianca Censori hafa gert stórreist um Ítalíu undanfarna viku og hefur hegðun þeirra vakið mikla athygli. Þannig fjölluðu erlendir miðlar um að ákall væri um að Bianca yrði handtekin fyrir ósiðsamlegt athæfi því hún klæddist fötum sem skildu lítið eftir fyrir ímyndunaraflið og þá sérstaklega gegnsæjum sokkabuxum. Ítölsk lög kveða á um að hver sá sem særir blygðunarsemi annarra eða berar sig nálægt börnum geti hlotið dóm og töldu sumir að Bianca væri að brjóta þau.
Parið fór rómantíska siglingu í Feneyjum í gær en þar tók ekki betra við því Kanye West hefur vakið heimsathygli fyrir einn sögulegasta „plömmer“ seinni tíma. Svo virtist sem poppstjarnan hafi ekki klæðst nærbuxum og því blasti afturendi hans við, hverjum sem á vildi horfa, í hvert sinn sem hann bugtaði sig og beygði um borð í bátnum.
Ljóst er að hjónin eru ekki að slá í gegn á Ítalíu og valda hneykslan hvert sem þau koma. Samband þeirra er frekar nýtt af nálinni en þau kynntust þegar Bianca, sem er ástralskur arkitekt, hóf störf fyrir Yeezy, fyrirtæki Kanye, árið 2020. Ástarsamband þeirra hófst svo í byrju árs og er talið að þau hafi gifst sig við leynilega athöfn um miðjan janúar.