Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata og Rúna Vigdís Guðmarsdóttir forstöðukona hafa sett íbúð sína við Rauðalæk í Reykjavík til sölu. Á
„Við Rúna ætlum að draga krakkana með okkur í ferðalag á nýtt heimili, samt bara 140 metra í loftlínu þetta skiptið. En fyrir vikið er dásemdaríbúðin okkar komin á markaðinn,“ segir Andrés Ingi í færslu á Facebook.
Eignin er 122,9 fermetra eign á annarri hæð í fjölbýlishúsi byggðu árið 1958. Íbúðin skiptist í hol, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.