Parið Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Margrét Júlíana Sigurðardóttir, hafa sett parhús sitt í Urriðaholtsstræti á sölu.
„Við Margrét Júlíana vorum að setja þetta fína endaraðhús í Urriðaholti á sölu eftir að við rákumst óvænt á fallega íbúð í Hlíðunum, sem er miklu nær skólum krakkanna, og létum vaða.
Okkur hefur líkað mjög vel í Urriðaholtinu. Það er notalegt og öruggt hverfi fyrir barnafólk, örstutt í náttúruna (Heiðmörk liggur við endann á götunni) og bara kippkorn í Costco, kaupfélag okkar Garðbæinga. Svo liggur það prýðilega við samgöngum.
Húsið er svo að segja nýtt, í umhverfisvænsta lagi með fimm herbergjum, sjónvarpsstofu og alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu en þaðan opnast út í garð,“ segir Andrés á Facebook.
Eignin er 183,8 fm, Svansvottað endaraðhús á tveimur hæðum, byggt árið 2021.
Eignin skiptist í fimm svefnherbergi, þvottahús, tvö baðherbergi, eldhús, borðstofu/stofu með útgengi út á timburpall, sjónvarpshol og rúmgóða geymslu fyrir framan húsið. Aðalarkitekt hússins er Arnar Þór Jónsson hjá Arkís arkitektum.
Framan við húsið er lokaður hellulagður garður ásamt rúmgóðum, upphituðum geymsluskúr og tengi fyrir heitum potti. Tvö sérmerkt bílastæði, auk gestastæðis, fylgja húsinu og rafhleðslustöð við stæði.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.