fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fókus

„Maður er bara einu sinni hérna á jörðinni og ég vil vita hvað ég get“

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 28. maí 2023 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Davíð Rúnar Bjarnason, afreksmaður í utanvegahlaupum, boxari og baráttumaður er gestur Einars Bárðarsonar í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Einmitt. Fyrir nákvæmlega ári síðan hljóp Davíð Rúnar 100 mílur eða 161 km í utanvegahlaupinu Salomon Hengill Ultra í Hveragerði. Davíð hljóp einnig tvö hundruð kílómetra á hlaupabretti í World Class í desember í fyrra til að vekja athygli á starfsemi Píeta og safna peningum fyrir starfsemi þeirra. Hann þolir ekki bómullarvæðingu og vill að við ölum upp sterka einstaklinga eins og hann segir sjálfur. 

Maður er bara einu sinni hérna á jörðinni og ég vil vita hvað ég get

Maður er bara einu sinni hérna á jörðinni, að því er við vitum og það er skrítið að fólk vilji ekki vita hvað við getum,segir hann aðspurður um hvatana til þess að fara svona langar vegalengdir í keppni. 

Ég myndi aldrei, ef það eru þrjár vegalengdir í boði, fara í aðra vegalengd en þá lengstu,segir hann.  Þannig er það ekki hlaupið sjálft sem heillar hann heldur vegalengdirnar. Hann segir forsenduna fyrir því, að reyna 100 mílur, fyrst og fremst þá að sjá hvað hann geti í raun lagt á sig sem einstakling og klárað. 

Minnti sig á það í heilt ár að hann þurfti að klára 

Davíð hafði gert atlögu að vegalengdinni árið 2021 og þá þurfti hann að hætta eftir rúmlega tvo þriðju af vegalengdinni. Hann lýsir því hvernig hann hafi verið vonsvikinn og reiður út í sjálfan sig og minnt sig á það á hverjum degi í ár að hann ætti eftir að klára þessa vegalengd. Sumarið 2022 var hann svo mættur á ráslínuna, hljóp alla vegalengdina og kláraði. Hann kom í mark í kvöldsólinni í Hveragerði umvafinn vinum og fjölskyldu rúmlega 31 klukkustund eftir að hann hóf keppnina. 

Þolir ekki eitthvað macho kjaftæði 

Davíð þjálfar ungt fólk í ólympískum hnefaleikum og skipuleggur stærstu keppnisviðburði í því sporti á Íslandi. Hann er vinsæll boxþjálfari og fer óhefðbundnar leiðir í þjálfuninni. 

Ég læt alla sem eru í þjálfun hjá mér kynnast, set þau niður í byrjun tímabilsins, eitt á móti einu og þau eiga að tala saman, ég vil að þau styrkist líka félagslega. Hann segir markmið sitt vera að byggja upp sterka einstaklinga, ekki til þess eins að vera líkamlega sterkir heldur andlega sterkir. Hann þolir ekki macho kjaftæði eins og hann segir sjálfur.

Hljóp 200 km til styktar Píeta samtökunum. 

Þeir ræða einnig baráttu Davíðs við ADHD og ýmsar áskoranir því tengdu. Þá hefur Davíð Rúnar skipulagt verkefni til styrktar Píeta samtökunum sem hann segir að vinni frábært starf. Það gerir hann bæði til að safna peningum en ekki síður til að vekja athygli á starfsemi þeirra sem hann segir vera til staðar fyrir fólk í sjálfsvígshugsunum á meðan ríkisstofnanirnar séu í fríi á kvöldin og um helgar. 

Salomon Hengill Ultra 2023 fer fram eftir tvær vikur í Hveragerði. 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Beverly Hills höll Bennifer formlega komin í sölu – Sjáðu myndirnar

Beverly Hills höll Bennifer formlega komin í sölu – Sjáðu myndirnar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Eddie Vedder segist hafa verið hætt kominn – Pearl Jam hættu við tónleika í London sem margir Íslendingar ætluðu á

Eddie Vedder segist hafa verið hætt kominn – Pearl Jam hættu við tónleika í London sem margir Íslendingar ætluðu á
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikarinn steinrunninn á meðan myndband af eftirmála voðaskotsins var spilað

Leikarinn steinrunninn á meðan myndband af eftirmála voðaskotsins var spilað