Sérhæð við Kársnesbraut í Kópavogi er komin í sölu á fasteignavef DV.
Um er að ræða 82,6 eign í húsi sem byggt var árið 1956.
Eignin skiptist í stofu og borðstofu, eldhús, stofu/sjónvarpshol, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Svalir eru út af stofu/borðstofu með útsýni yfir dalinn og út á sjó. Einin er vel skipulögð og mikið uppgerð.
Verið er að leggja lokahönd á stækkun (kvist) og frágang á svölum.
Þú getur lesið nánar um eignina og skoðað fleiri myndir á fasteignavef DV.