Ástin er úti hjá Hafdísi Björg Kristjánsdóttur, fitnessdrottningu og eiganda líkamsmeðferðarstofunnar Virago, og Kristjáni Einari Sigurbjörnssyni, Kleina, samkvæmt öruggum heimildum DV
Athygli vakti fyrir nokkrum dögum þegar fjölmiðlar, þar á meðal DV sögðu frá því að þau væru að deita. Hafdís Björg sagði þá að þau væru vissulega búin að hittast einu sinni, eftir að hafa verið vinir í langan tíma, en of snemmt væri að segja að þau væru orðin par.
Sjá einnig: Hafdís Björg og Kristján Einar eru að deita
„Uu… Nei. Þið megið alveg bíða með hamingjuóskirnar sko. En, við erum að deita en þetta er ekki þannig að við séum tilbúin að opinbera það eitthvað. Maður er bara að prófa sig áfram, finna hvað hentar manni og hvernig maður smellur saman,“ sagði Hafdís Björg í viðtali á FM957.
Á samfélagsmiðlum um páskahelgina birtu þau bæði myndir af formlegum stefnumótum, en bæði eru með nokkurn fjölda fylgjenda á Instagram. Glöggir fylgjendur hafa þó tekið eftir að þau eru hætt að fylgja hvort öðru þar og samkvæmt heimildum DV eru þau ekki lengur að deita.