Napóleónsskjölin, sem frumsýnd var síðastliðinn föstudag, er aðsóknarmesta mynd helgarinnar en rúmlega 5000 gestir upplifðu myndina sem byggð er á samnefndri metsölubók eftir Arnald Indriðason.
Leikstjóri myndarinnar er Óskar Þór Axelsson en fyrri myndir hans eru Svartur á Leik og Ég man þig sem nutu báðar mikilla vinsælda.
Með aðalhlutverk fara Vivian Ólafsdóttir (Leynilögga), Jack Fox (Riviera), Iain Glen (Game of Thrones), Ólafur Darri Ólafsson, Adesuwa Oni (The Witcher), Annette Badland (Ted Lasso), Atli Óskar Fjalarsson og Þröstur Leó Gunnarsson.
Stiklu myndarinnar má sjá hér.