Íbúð í tvíbýlishúsi í Litlagerði í Fossvogi er komin í sölu á fasteignavef DV.
Um er að ræða 127 fermetra eign, þar af bílskúr 32,4 fm, í húsi byggðu árið 1957.
Eignin skiptist í hol, eldhús og borðstofu í einu rými, stofu, svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallara er búið að útbúa herbergi í 11,2 fm rými sem er skráð sem geymsla. Salerni er í kjallara með vaski og er sameiginlegt með neðri hæðinni sem og þvottahús og dekkjageymsla í kjallara.
Bak við bílskúrinn er 16,9 fm garðskáli.
Þú getur lesið nánar um eignina og skoðað fleiri myndir á fasteignavef DV.